Lífið

Lambakjötið er mitt grænmeti

"Við erum að klára sauðfjárslátrun í þessari viku og næstu," segir Hermann Árnason, sláturhússtjóri SS á Selfossi, en á hans bæ stendur sláturtíðin yfir í hálft ár og hefur verið slátrað í hverri viku allt frá lokum júlí. "Við erum aðallega að slátra fyrir Danmerkurmarkað núna en þar er rík hefð fyrir fersku lambakjöti um þetta leyti árs, jól og áramót," segir Hermann og bætir við að sama máli gegni um Japansmarkað. "Japanir eru mjög hrifnir af lambahryggjum en lærin fara flest til Danmerkur." Sjálfur fær Hermann ekkert betra að borða en lambakjöt og hefur það á borðum oft í viku. "Ég matreiði það á alla vegu; sýð, steiki og grilla. Ég lifi á þessu og lambakjötið er í raun mitt grænmeti," segir hann en hefðbundið grænmeti leggur hann sér ekki til munns. Hermann leggur sér vitaskuld lambakjöt til munns yfir hátíðirnar, hefur það þá reykt og reyndar svínahamborgarhrygg líka. Annars var hann við útskipun sauðagæra í Sundahöfn þegar Fréttablaðið náði af honum tali. "Loksins er einhver skriður kominn á gærusöluna eftir erfiðleika í allt haust. Við erum að senda núna góðan slatta til nokkurra landa; Tyrklands, Spánar og Bandaríkjanna, svo eitthvað sé nefnt. Ætli þetta komi svo ekki til baka sem vesti, jakkar og pils."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.