Sport

Grant Hill í fullu fjöri

Grant Hill hefur átt glæsilega endurkomu það sem af er vetri með Orlando Magic í NBA-deildinni í körfuknattleik. Hill, sem sleppti tímabilinu í fyrra í von um að ná sér að fullu af þrálátum ökklameiðslum, hefur skorað 19 stig, tekið 6 fráköst, gefið 3,2 stoðsendingar og stolið 1,53 boltum að meðaltali í leik. Skotnýting hans er heldur ekki af verri endanum, 48,9% í tveggja stiga skotum, 85,7% í vítaskotum og hvorki meira né minna en 66,7% í þriggja stiga skotum. Magic hefur unnið fjóra af fyrstu sex leikjum deildarinnar og er liðið jafnt ásamt Miami Heat í tveimur efstu sætum suðausturriðilsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×