Sport

Miller í uppáhaldi hjá Woody Allen

Leikstjórinn Woody Allen viðurkenndi nýverið að Reggie Miller væri einn af hans uppáhaldsleikmönnum. Frægt er orðið þegar Allen sat á hliðarlínunni í leik New York Knicks og Indiana Pacers og öskraði á Miller, sem brást æfur við og skaut Knicks í kaf upp á sitt eindæmi í lokafjórðung leiksins í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Fjölmiðlar vestra sögðu Allen hafa "kostað Knicks sigurinn". Allen segir útkomu leikja ekki aðalmálið, heldur gæði hvers leiks fyrir sig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×