Hótel miðborg Reykjavík 6. desember 2004 00:01
Hótel Borg við Pósthússtræti í Reykjavík var tekið í notkun í janúar 1930. Bygging þess sætti tíðindum, það var glæsilegt í alla staði, glæsilegra en önnur hótel á Íslandi. Lengi var Borgin aðalhótelið í borginni en þegar leið fram á öldina bættust fleiri í hópinn, til dæmis Saga, Holtið og Loftleiðir. Erfiðir tímar gengu í garð og Hótel Borg mátti muna sinn fífil fegri. Reksturinn gekk brösuglega og sá dagur kom að ekki var einsýnt um framhald hótelreksturs í húsinu. Fyrir hálfum öðrum áratug voru uppi hugmyndir um að gera húsnæðið að skrifstofuaðstöðu fyrir Alþingi en frá þeim var horfið, sem betur fer sjálfsagt. Meðal þess sem mælti gegn hugmyndinni var að engin væri miðborgin án hótels. Engu að síður stóð Hótel Holt í miðborgarjaðrinum við Bergstaðastræti og City hótel var við Ránargötu. Nú er öldin önnur og fimm ný miðborgarhótel hafa bæst við. Hótel Klöpp var opnað fyrir nokkrum árum á horni Klapparstígs og Hverfisgötu, Skjaldbreið stendur við Laugaveginn, Studios er íbúðahótel í Ísafoldarhúsinu við Þingholtsstræti, 101 hótel er á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu og Hótel Plaza stendur við Aðalstrætið. Iðnaðarmenn eru í óða önn að gera Reykjavík Centrum við Aðalstræti 10-12 gistihæft og sömuleiðis Hótel 1919 í gamla Eimskipafélagshúsinu. Er þar skrifstofum breytt í hótelherbergi, öfugt við hugmyndirnar um Borgina á sínum tíma þar sem breyta átti hótelherbergjum í skrifstofur. Þá er á teikniborðinu hótelbygging í tengslum við nýtt tónlistar- og ráðstefnuhús við höfnina. Er þá ótalinn fjöldi gistiheimila af ýmsum stærðum og gerðum í og við miðborgina. Herbergjafjöldi miðborgarhótelaHótel Borg51Hótel Holt42City hótel31Hótel Klöpp46Skjaldbreið33Studios20101 hótel40Hótel plaza80191970Reykjavík centrum90Hótel í tónlistarhúsi200Fjölgun hótela hefur verið í eðlilegu hlutfalli við fjölgun ferðamanna til landsins. "Árið 1990 komu hingað 141 þúsund ferðamenn en allt stefnir í að þeir verði um 350 þúsund á þessu ári. Einhvers staðar þarf allt þetta fólk að gista og þegar dvalarstaður í borgum er ákveðinn skiptir þrennt máli; staðsetning, staðsetning og staðsetning," segir Þorleifur Þór Jónsson, hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar. Í ferðafræðunum er það þekkt að hótel hafa styrk hvert af öðru, það er hagur eins að fá annað í túnfótinn. Slíkt gerir stórum hópum kleift að dvelja í nábýli ef ekki komast allir fyrir á einu hóteli. Óvíst er hve lengi núverandi gistirými í miðborginni nægir og sá dagur kemur eflaust fyrr en síðar að fjölga þarf hótelum enda öll teikn í þá átt að ferðamönnum fjölgi enn frekar á komandi árum.
Innlent Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira