Aftanákeyrslum fjölgar 22. september 2004 00:01
Aftanákeyrslum hefur fjölgað á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar eftir breytingar sem þar voru gerðar á akstursljósum í fyrrahaust, að því er fram kemur í nýjum tölum frá tryggingafélaginu Sjóvá-Almennum. Þá hefur einnig fjölgað árekstrum sem verða þegar ökumenn skipta um akrein inni á gatnamótunum og veltir tryggingafyrirtækið upp þeirri spurningu hvort gul blikkandi ör akstursljósanna kunni að rugla þá. Í fyrra voru sett upp beygjuljós sem eru í gangi á kvöldin og næturnar en blikka gul yfir daginn. Þá var gerð betri aðgreining fyrir gangandi vegfarendur, með grindverki og tvískiptum gönguljósum. "Eftir þær breytingar hafa ekki verið skráð slys á gangandi eða hjólandi vegfarendum," segir Einar Guðmundsson, forvarnarfulltrúi hjá Sjóvá-Almennum. Aftanákeyrslur eru nú 68 prósent allra tjóna við gatnamótin í stað 63 prósenta áður. Svonefndum vinstribeygjutjónum hefur hins vegar fækkað töluvert, úr því að vera 23 prósent allra tjóna niður í 16 prósent. "Alvarlegustu slysin hafa átt sér stað, annars vegar á rauðu ljósi og hins vegar þegar tekin er vinstri beygja í veg fyrir umferð sem kemur á móti," segir Einar. Tölurnar sýna einnig að slösuðum hefur fækkað verulega, úr 17 á tímabilinu september 2002 til ágústloka 2003, í 10 frá því í september í fyrra og til ágústloka nú. Einar segir óhætt að yfirfæra tölur fyrirtækisins á heildina miðað við markaðsstöðu, en Sjóvá er með um þriðjungshlutdeild á tryggingamarkaði. Þannig má gefa sér að eftir breytingar slasist nú árlega um 30 manns á gatnamótunum í stað 50 áður. Einar bendir þó á að ískyggilegt sé hversu mjög þeim fjölgar sem slasast við akstur á rauðu ljósi, úr 10 prósentum í 30 prósent af heildarfjölda. Hann áréttar þó að tímabilið sé stutt og því vegi hvert slys þungt í tölunum. Þá bendir hann á að slysum hafi almennt fækkað um 17 prósent á höfuðborgarsvæðinu á árinu. Hafi fólk umferðaröryggis- og forvarnarsjónarmið í huga segir Einar að taka ætti gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem fyrst í mislæg gatnamót. "Þarna krossast meginumferðarstraumarnir," segir hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent Handtekinn vegna stunguárásarinnar Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Fleiri fréttir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent