Auknar kröfur í matvælaiðnaði 22. september 2004 00:01
Matvælavinnsla er í síauknum mæli að færast úr eldhúsum mötuneyta og heimila til iðnfyrirtækja. Kröfurnar eru miklar, því ekki einungis þarf maturinn að vera fljótlegur heldur líka hollur. Á árlegri kynningu Samtaka Iðnaðarins á framleiðslu í matvælaiðnaði er margt að skoða og að sjálfssögðu smakka. Kröfur neytenda hafa aukist gríðarlega síðustu ár og hefur það kallað á fjölbreyttara vöruúrval. Liðin er sú tíð að einungis örfáar tegundir osta fáist, nokkrar tegundir af jógúrt, bláberjaskyr, rúllupylsa og grænar baunir. Nú koma reglulega á markað ný tilbrigði við gömul stef og svo líka hreinar nýjungar. Talað hefur verið um skyrbyltingu í kjölfar þess að neytendur áttuðu sig á hollustu próteinsins í mysu en nú má enginn lengur vera að því að hræra skyrið sjálfur og helst á að vera hægt að drekka það. Starfsmenn mötuneyta fjölmenntu í dag, enda margir að kynna sniðugar lausnir fyrir stóreldhús, lausnir sem snúast um góðan mat með lítilli fyrirhöfn. Meðal þeirra sem sáust á Grand hótel í hádeginu í dag var Elín Helgadóttir, matreiðslumaður í Engidalsskóla. Hún segir þetta nýtast sér vel, enda sé verkfall í skólunum og á meðan sé gott að nýta tímann í að fara í heildsölur og fleira í þeim dúr.
Fréttir Innlent Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Innlent Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Innlent Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Innlent Segist eiga fund með Pútín Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Innlent Fleiri fréttir Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Sjá meira