Innlent

Skilti afhjúpað við Gaddstaði

Í vikunni var afhjúpað upplýsingaskilti í svokölluðum Aldamótaskógi á Gaddstöðum við Hellu. Árið 2000 var gróðursett á fjórum stöðum á landinu, þar á meðal á Gaddstöðum, í tilefni aldamóta og vegna afmælis Skógræktarfélags Íslands og KB Banka. Er skiltinu nú ætlað að kynna svæðið sem mun verða fjölsótt útivistarsvæði fyriralmenning í náinni framtíð. Það voru þau Sólon Sigurðsson frá KB-banka og Sigríður Heiðmundardóttir frá Skógræktarfélaginu sem afhjúpuðu skiltið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×