Segir Samherja beygja lögin 19. júlí 2004 00:01
Samherji hf. fer í kringum fiskveiðistjórnunarlögin og tekur veiðiréttinn af íslenskum sjómönnum, að sögn formanns Sjómannasambands Íslands. Samherji hf. hefur fest kaup á frystitogaranum Akrabergi frá Framherja spf. í Færeyjum, sem Samherji á þriðjungshlut í. Tilgangur kaupanna er að nýta úthafskarfaheimildir sem Samherja hefur verið úthlutað utan lögsögu Íslands. Í kaupsamningum er ákvæði um skilarétt skipsins innan þriggja mánaða frá undirritun. Áhöfnin telur 28 menn, færeyska og íslenska. Samherji gerði samskonar kaupsamning við Framherja í fyrra og gengu kaupin til baka að tveimur mánuðum liðnum og mun eins vera með þessi kaup farið. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, kallar þetta "gervikaup" og segir Samherja hf. fara í kringum íslensk fiskveiðistjórnunarlög. "Það er óeðlilegt að eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins skuli láta útlenda sjómenn veiða íslenskar veiðiheimildir og taka þannig veiðiréttinn af íslenskum sjómönnum." Sævar segir ekki vita hvort hægt sé að sporna við þessu með lagabreytingu, en segist höfða til stjórnenda Samherja fyrst og fremst. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., vísar gagnrýni Sævars á bug og segir hana ómálefnalega. "Samherji hefur í gegnum árin verið með fjölda íslenskra sjómanna á erlendum skipum. Það er því óráðlegt af hálfu Sjómannasambandsins að fara út í þessa umræðu, því tekjur íslenskra sjómanna á erlendum skipum eru miklu meiri en tekjur útlendra sjómanna á íslenskum skipum." Vilhjálmur Egilsson hjá sjávarútvegsráðuneytinu segist ekkert athugavert sjá við kaupin. "Mönnum er frjálst að eiga viðskipti með þau skip sem þeir vilja, svo lengi sem þeir uppfylla öll ákvæði íslenskra laga og það er ekkert í íslenskum lögum sem kveður á um lágmarkseignarhald á skipum." Vilhjálmur telur ennfremur ekkert athugavert við að erlendar áhafnir séu á íslenskum skipum, það sé ekkert í lögum sem banni það og áhöfnin sé á íslenskum kjarasamningum.
Fréttir Innlent Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Hæstiréttur í Bretlandi dæmir Auðuni Má í vil Fréttir Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Sjá meira