Þremenningarnir á leiðinni heim 25. október 2004 00:01
Íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Kabúl í Afganistan á laugardag koma heim í sjúkraleyfi á föstudag. Tveir þeirra, Sverrir Haukur Grönli og Steinar Örn Magnússon, fara aftur til Kabúl eftir viku til tíu daga en óvíst er hvort Stefán Gunnarsson fari aftur út. Hann slasaðist mest af Íslendingunum í árásinni, fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans. Afgönsk stúlka og bandarísk kona létust í árásinni. Stefán liggur enn á spítala í Kabúl en Sverrir og Steinar eru komnir á flugvöllinn sem er undir stjórn íslenska friðargæsluliðsins. Búist er við Stefáni þangað í síðasta lagi á miðvikudag. Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður flugvallarins, segir að Stefán sé við góða heilsu. Hann segir að mönnum sé brugðið og málin hafi verið rædd af mikilli alvöru í þeirra hópi í gær. Reglur hafi ekki verið brotnar með því að ferðast inn í borgina og engar breytingar verði gerðar á starfseminni. Hins vegar kunni að verða breytingar á reglum um ferðir inn í Kabúl. Þýskur hershöfðingi, sem er hæstráðandi setuliðsins í Afganistan, sagði við Hallgrím í gær að hugsanlega verði hermönnum og friðargæsluliðum bannað að ferðast um borgarhlutann þar sem árásin var gerð. Talíbanar hafa lýst sprengjuárásinni á hendur sér og fullyrða að hún sé upphafið að frekari árásum á vestræna hermenn og friðargæsluliða. Hallgrímur segir að vígamenn í landinu geri lítinn greinarmun á friðargæsluliðum og hermönnum. Þrír friðargæsluliðar hafa verið myrtir í Afganistan á þessu ári. Í maí féll Norðmaður þegar skotið var úr sprengjuvörpum á hóp friðargæsluliða og tveir féllu í sjálfsvígssprengjuárásum í janúar. Það hefur enginn í íslenska friðargæsluliðinu óskað eftir því að hætta störfum í Kabúl eftir árásina að sögn Hallgríms. Dvöl hópsins fer senn að ljúka því að nýr sextán manna hópur tekur við stjórn flugvallarins í desember. Utanríkisráðuneytið neitar að veita upplýsingar um hverjir skipa hópinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Fleiri fréttir „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Sjá meira