Þrjú ár fyrir kynferðisbrot 25. október 2004 00:01
Fertugur karl var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa beitt fósturdóttur sína grófu kynferðislegu ofbeldi og leitað á vinkonu hennar. Dómarinn segir ákærða ekki eiga sér neinar málsbætur og ljóst að brot hans geti valdið stúlkunum margvíslegum sálrænum erfiðleikum. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa káfað á brjóstum fósturdóttur sinnar innanklæða þegar hún var 14 ára. Þá er hann fundinn sekur um að hafa haft samfarir við hana ítrekað á árunum 2002 og 2003, en þá var stúlkan 15 ára. Það átti sér stað, ýmist á salerni eða skrifstofu þar sem maðurinn vann. Hann er ennfremur fundinn sekur um að hafa haft samfarir við stúlkuna í hjónaherbergi heimilisins, það er í hjónaherbergi sínu og móður stúlkunnar. Hann þvingaði hana ennfremur til samræðis á salerni fyrirtækisins rétt fyrir jólin 2003, en þá var stúlkan orðin 16 ára. Maðurinn er ennfremur fundinn sekur um að hafa káfað innanklæða á brjóstum vinkonu stúlkunnar og hann er sakfelldur fyrir að hafa átt tæplega 200 kvikmyndir og tæplega 600 ljósmyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn þverneitaði að hafa brotið gegn fósturdóttur sinni og vinkonu hennar. Hann sagðist hafa gengið stúlkunni í föðurstað fyrir 13 árum og að ásakanirnar væru runnar undan rifjum unnusta hennar. Hann viðurkenndi hins vegar að hafa átt klámið sem fannst á heimili hans. Dómarar töldu vitnisburð fósturdóttur hans skýran og afdráttarlausan og einkennast af hreinskilni og einlægni. Hann er lagður til grundvallar þess að sakfella manninn og dæma hann til þriggja ára fangelsisvistar og skal öll refsingin vera óskilorðsbundin. Í dóminum segir að atferli ákærða sé til þess fallið að valda fósturdóttur hans sálarháska og tjóni. Maðurinn skal greiða fósturdóttur sinni 1,2 milljónir króna í skaðabætur og vinkonu hennar 150 þúsund krónur.
Fréttir Innlent Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira