Búið að útskrifa tvo hinna slösuðu 25. október 2004 00:01
Tveir af þeim þremur Íslendingum sem slösuðust í sprengjuárásinni í Kabúl á laugardag, voru útskrifaðir af sjúkrahúsi í morgun. Þeir hafa allir óskað eftir því að yfirgefa Afganistan og koma til Íslands næsta föstudag. Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður flugvallarins í Kabúl, sagði í viðtali við fréttastofu, nú skömmu fyrir fréttir, að Steinar Örn Magnússon, og Sverrir Haukur Grönli, sem eru í Íslensku friðargæslunni í Afganistan, hefðu verið útskrifaðir af sjúkrahúsi í Kabúl í morgun, en þeir særðust í sjálfsmorðsárásinni sem gerð var í miðborg Kabúl á laugardag. Félagi þeirra, Stefán Gunnarsson, særðist einnig, en hann liggur enn á sjúkrahúsi, þar sem hann fékk meðal annars sprengjubrot í fótinn og á neðri hluta líkamans. Íslensk stjórnvöld hafa fordæmt harðlega sprengjuárásina og yfirlýsingu Talíbana í kjölfar hennar, en Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að atburðirnir hafi þó engin áhrif á starf Íslensku friðargæslunnar þar. Hallgrímur Sigurðsson segir líðan þremenningana ágæta, þrátt fyrir þessa skelfilegu árás. Hann segir tvo þeirra komna af spítalanum og sá þriðji verði væntanlega útskrifaður á morgun. Að eigin ósk fari þeir heim á fimmtudaginn, fyrst og fremst vegna fjölskylduaðstæðna. Ekki sé ákveðið hvort eða hvenær þeir fari aftur til Kabúl. Hallgrímur segir að menn muni halda sínu striki áfram þrátt fyrir árásina og væntenlega verði ekki sendir aðrir menn í stað þeirra sem í árásinni lentu.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Erlent Þrír reyndu að komast undan lögreglu Innlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Erlent Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks Innlent Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Innlent Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Fleiri fréttir Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Sjá meira