Fundur boðaður á morgun 25. október 2004 00:01
Forsætisráðherra hvetur deilendur í kennaradeilunni til að setjast að samningaborðinu aftur og ítrekar að lög verði ekki sett á verkfallið. Launanefnd sveitarfélaganna segir gerðadóm í málinu ekki koma til greina, en að tilboð sem sáttasemjari lagði fram, standi enn. Ríkissáttasemjari var boðaður með stuttum fyrirvara á fund forsætisráðherra nú í hádeginu. Fulltrúar kennara og launanefndar sveitarfélaganna gengu á fund forsætisráðherra, fjármálaráðherra og menntamálaráðherra í morgun, en forsætisráðherra hafði boðað þá á sinn fund. Að sögn Eiríks Jónssonar formanns Kennarasambands Íslands var farið yfir stöðu mála á fundinu og hver staðan hafi verið þegar uppúr slitnaði síðasta fimmtudag. Hann segir ráðherra ekki hafa verið með nein útspil á fundinum. Farið hafi verið fram á að menn settust aftur að samningaborðinu, enda væri hálfsmánaðar hlé ekki ásættanlegt á þessum tímapunkti og segist Eiríkur sammála því og hans menn muni mæta á fundi um leið og eftir því verði leitað, en varar um leið við því að menn sitji langdvölum í Karphúsinu, öðruvísi en að vera með eitthvað sem gæti orðið grunnur að samkomulagi. Eiríkur segir gerðardóm ekki hafa verið ræddan nema mjög óformlega í fundarlok og þá ekki sem raunhæfan möguleika. Hann segir forsætisráðherra ekki hafa boðað lög á verkfallið og engin vinna í þá veru hefði farið fram í ráðuneyti hans. Að loknum fundinum með kennurum gengu fulltrúar launanefndar sveitarfélaganna á fund ráðherra. Eftir fundinn sögðu þeir gerðardóm ekki koma til greina í málinu, en ítrekuðu að tilboðið sem ríkissáttasemjari lagði fram í síðustu viku stæði enn og nota mætti það sem grundvöll frekari viðræðna, en meira fjármagn yrði ekki sett í málið. Þá gekk Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari á fund ráðherra nú laust fyrir klukkan tólf og í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins var sagt að boðað hefði verið til fundar á nýjan leik á morgun
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fleiri fréttir Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjá meira