Vandi færður milli borgarhluta 5. ágúst 2004 00:01
Ákvörðun Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur um að fjarlægja aðra færanlega kennslustofu af tveimur sem Brosbær, frístundaheimili Engjaskóla, hefur til umráða, raskar starfsemi leikjanámskeiða sem nú fara fram á staðnum. Þá liggur ekki fyrir hvernig tilhögun daggæslu skólabarna verður háttað í vetur. Kennslustofan var flutt burt í gærkvöld þannig að starfsemin fer úr 120 fermetrum í 60 fermetra. "Aðalatriðið er að aðstaðan sé viðunandi og bæði foreldrar og starfsfólk séu ánægð með hana. Eins og staðan er núna þá eru mál í uppnámi," segir Atli Steinn Árnason, forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar Gufunesbæjar, en undir hana heyrir Brosbær. Hann segir að færa eigi stofuna að öðrum skóla í Reykjavík þar sem hennar sé þörf. Næsta vetur er útlit fyrir að í Brosbæ verði um 45 börn í gæslu með skóla. Guðbrandur Guðmundsson, sem á sæti í foreldraráði, segir sína tilfinningu að þarna séu embættismenn að höndla með mál sem betur hefðu verið á forsvari stjórnmálamanna. "Það er verið að leysa plássvandræði annars staðar með því að búa til vandamál hjá okkur," segir hann og telur að eðlilegra hefði verið að hinkra með flutning stofunnar meðan leitað yrði viðunandi lausnar. Þá bendir hann á að ekki hafi verið haft samráð við foreldraráðið og því gefinn kostur á að gefa umsögn sína um málið, líkt og þó er kveðið á um í reglum um samskipti foreldraráða og skólayfirvalda í grunnskólum Reykjavíkur. Stefán Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs Reykjavíkur, segir að sér hafi borist mótmæli foreldra. "Ég hef ekki áhyggjur af því að málið verði ekki leyst eftir að hafa rætt bæði við Fræðslumiðstöð og skólastjóra Engjaskóla. Frístundaheimilið hefur verið mjög rúmgott," segir Stefán og bendir á að í samningi Fræðslumiðstöðvar og ÍTR sé gert ráð fyrir að hvert frístundaheimili hafi um 60 fermetra húsnæði sem miðstöð og samnýti svo skólahúsnæði með skólanum. "Það verður gert hér eftir," segir Stefán Jón en telur um leið að vera kunni að ekki hafi verið hugað nægilega að sumarnámskeiðum sem standa yfir í Brosbæ áður en ákveðið var að færa kennslustofuna.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira