Lögmaður Laxness stal frá honum 3. desember 2004 00:01
Danskur lögmaður Halldórs Laxness stal af honum andvirði íbúðar í byrjun sjötta áratugarins. Hann sat í fangelsi í þrjú ár fyrir fjársvik. Þetta kemur fram í nýrri ævisögu um Nóbelsskáldið. Í nýrri ævisögu Halldórs Guðmundssonar um Nóbelsskáldið kemur fram að danskur lögfræðingur, sem hafði umsjón með öllum ritlaunum Laxness erlendis, hlunnfór hann í byrjun sjötta áratugarins. Lögfræðingurinn, Per Finn Jacobsen að nafni, og Laxness fóru árið 1957 til Stokkhólms til að fá Nóbelsverðlaunin yfirfærð til Bandaríkjanna því Halldór treysti hvorki íslenskum skattayfirvöldum, þótt búið væri að samþykkja að verðlaunin væru skattfrjáls, né sænsku krónunni. Halldór Guðmundsson segir Jacobsen hafa tekist þetta með því að fá sér nokkra snafsa og það hafi eiginlega verið eins gott því árið 1960 missá hann sig, ef svo má segja, á peningum þeirra sem hann hafði umboð fyrir og hafði m.a. 40 þúsund danskar krónur af Laxness, eða andvirði einnar íbúðar á þeim tíma. Jacobsen hafði einnig um 30 þúsund krónur af Gunnari Gunnarssyni. Hann var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar en Halldór fékk féð síðar bætt frá tryggingasjóði danska lögmannafélagsins. Halldór hefur um áratuga skeið rannsakað ævi og rit Laxness og unnið sleitulítið að ævisögunni um tveggja ára skeið. Hann segir að því fylgi óneitanlega mikil pressa að rita um ævi virtasta skálds þjóðarinnar. „Hann var náttúrlega eins og Einar Már held ég orðaði það: hann var sólin sem skein,“ segir Halldór um nafna sinn og bætir því við að hver maður eigi sinn Halldór og hér með hafi hann lagt fram sinn. Spurður hvort hann hafi sagt skilið við skáldið með þessari ævisögu segir Halldór að hvíld verði alla vega tekin í sambúð þeirra í bili.
Innlent Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Fleiri fréttir Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Sjá meira