Úr þrælakistu í dj-djobb á Hlemmi 3. desember 2004 00:01
Fókus fylgir DV í dag með fréttir úr skemmtana-, bíó- og tónlistarheimum. Meðal þess sem um er fjallað er nýr staður, sem býður ótakmarkað magn af bjór fyrir 2000 eða 1000 kall og hljómsveitina Aminu sem er gift Sigur Rós og loksins að gefa út plötu. Forsíðuna prýðir Rósa Spotlight Guðmundsdóttir, sem er að setja upp söngleik með Ruth Reginalds í aðalhlutverki. Þá er einnig tekið viðtal við plötusnúðinn Mana Raknarong, sem er karókístjóri Kaffisetursins: Á Laugaveginum, rétt fyrir neðan Hlemm, leynist veitinga- og skemmtistaðurinn Kaffisetrið. Það sem fæstir vita er að um helgar fær staðurinn endurnýjun lífdaga þegar plötusnúðurinn Mana Raknarong sest í búrið sitt. Hann keyrir karókígræjur alla föstudaga og spilar tælenska stuðtónlist á laugardögum. Fókus fór á Kaffisetrið og tékkaði á hinum brosmilda Mana, sem er ekki allur þar sem hann er séður. "Ég elska að vera plötusnúður og fólkið sem kemur að hlusta á mig. Ég elska allar græjurnar og ég elska sætu stelpurnar sem koma hingað til að drekka og dansa," segir Mana Raknarong. Mana er plötusnúður og karókístjóri á Kaffisetrinu, sem er staðsett rétt fyrir neðan Hlemm. Býr til playlista heima Kaffisetrið er fjölskylduveitingastaður. Síðastliðinn þriðjudag hélt Raknarong-fjölskyldan upp á tveggja ára afmæli hans. Mana segir hann vinsælan. "Þetta er eini staðurinn í Reykjavík með tælenska tónlist og diskó. Við ætlum að breyta nafninu núna um áramótin. Vitum ekki alveg í hvað ... eitthvað Thai." Systir hans Patcharee rekur staðinn ásamt eiginmanni sínum en fjölskyldan, sem telur um fimmtán manns, hjálpar öll til. Mana er hæstánægður með hlutverk sitt sem plötusnúður og tekur það alvarlega. Liggur yfir forriti sem hann kallar Program DJ og sankar að sér lögum. Segist vera með yfir tuttugu þúsund lög í tölvunni, flest tælensk. Á föstudögum er hann harður í karókístjórninni: "Pantið lög! Pantið lög!" Á laugardögum fær hann hinsvegar að njóta sín með tónlistarvali og prófar playlistana sem hann hefur áður útbúið. "Fólk er alltaf að biðja um óskalög. Ég hlusta ekkert mikið á það. Ég kaupi tónlistina mest frá Tælandi. Hún fæst ekki í Skífunni," segir hann og hlær. Afganginn af viðtalinu er að finna í Fókus, sem fylgir DV í dag. Þar segir Mana einnig frá því þegar hann vann í þrælakistu fyrir Reebok, kókaíni og kannabis á Tælandi, rasisma Íslendinga og því að hann hefur ekki hugmynd um hver Davíð Oddson er, þrátt fyrir að hafa búið á Íslandi í fimm ár.
Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Sjá meira