Innlent

Samfylking vill úttekt

Margrét Frímannsdóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar telur furðu sæta að ríkisfyrirtækið Síminn kaupi hlut í fjölmiðlafyrirtæki þegar talað sé um nauðsynlegan niðurskurð hjá Ríkisútvarpinu. Þingflokkurinn hefur farið fram á að gerð verði opinber úttekt á Landssímanum og dótturfélögum hans. Margrét hefur farið fram á það við forsætisnefnd Alþingis fyrir hönd þingflokksins að hún feli Ríkisendurskoðun að gera úttekt á Símanum og dóttur og hlutdeildarfélögum hans. Til grundvallar verði lagðar nokkrar spurningar sem lúta meðal annars að kaupum á fjórðungshlut í Skjá einum á dögunum, hvaða arðsemiskröfur lágu þar að baki og hvernig fjármögnun kaupanna var háttað. Þá er spurt um fjárfestingar í Breiðbandinu, í dóttur- og hlutdeildarfélögum og svo um rekstrarafkomu og skattgreiðslur. Margrét segir nauðsynlegt að fara þessa leið þar sem illa hafi gengið að fá svör við spurningum sem lagðar hafa verið fram á þingi um þetta fyrirtæki, sem að langmestum hluta sé í eigu ríkisins. Hún segir almenning eiga fyrirtækið og það sé ómerkilegur málflutningur að spyrða Samfylkinguna við Norðurljós vegna þessa. Það sé óeðlilegt að fyrirtæki í ríkiseign kaupi hlut í fjölmiðlafyrirtæki á sama tíma og verið sé að tala um að það þurfi jafnvel að skipta upp ríkisútvarpinu og draga úr umsvifum ríkisins á þessu sviði. Forsendurnar sem liggi að baki kaupunum séu ekki ljósar þingmönnum né öðrum og því sé eðlilegt að farið sé fram á þessar upplýsingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×