Innlent

Hættulegir hlutir finnast

Nokkrar vélbyssur og fleiri hættulegir hlutir fundust fyrir helgi við flak breskrar sprengjuflugvélar á Eyjafjallajökli. Vélin fórst í seinna stríði fyrir réttum sextíu árum. Sprengjusérfærðingar Landhelgisgæslunnar rannsökuðu flakið á föstudaginn eftir að hafa fengið upplýsingar um vopnabúnað flugvélarinnar úr gagnagrunni NATO og frá safni breska flughersins. Bæði fjarstýrðar og handvirkar vélbyssur voru um borð og voru nokkrar vélbyssur teknar til handargagns í ferðinni og fleiri hættulegir hlutir. Þá voru aðrir hættulegir hlutir, sem ekki var talið öruggt að flytja, merktir sértaklega. Hið fljúgandi virki brotlenti á Eyjafjallajökli í september 1944. Flugmennirnir höfðu villst af leið í slæmu veðri á leið með nýþjálfaða áhöfn frá Bandaríkjunum til Bretlands. Allir í vélinni komust lífs af.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×