Þurfa 27,7 milljarða á næsta ári 27. september 2004 00:01
Stjórnendur Landspítalans telja sig þurfa 27,7 milljarða króna á næsta ári til að geta haldið rekstri spítalans óbreyttum frá því sem verið hefur. Formaður stjórnarnefndar spítalans er bjartsýnn á að spítalinn þurfi ekki að standa við 700 milljóna króna niðurskurð í haust. Landspítalinn fékk tæpa 25 milljarða á fjárlögum í fyrra sem var mikil skerðing á framlögum frá árinu áður. Stjórnendur spítalans reiknuðu út að með tilliti til verðbreytinga frá árinu á undan þyrfti að skera niður um 1400 milljónir og fékkst vilyrði stjórnvalda til að þær aðgerðir mættu taka tvö ár. Spítalinn á því von á aukafjárveitingu upp á sjö hundruð milljónir nú. Til að mæta fyrri hluta niðurskurðarins þurfti meðal annars að segja upp starfsfólki og alls er talið að ársverkum hafi fækkað um tvöhundruð. Stjórnendur spítalans hafa beðist undan því að standa við seinni hluta niðurskurðarins. Ljóst var að aðrar eins uppsagnir yrðu í haust ef stjórnendum spítalans yrði gert að standa við frekari niðurskurð, þá myndi hann að öllum líkindum þýða grundvallarbreytingar á starfsemi spítalans auk þess sem það þyrfti að innheimta sjúklingagjöld af þeim sem leggðust inn á spítalann. Í greinargerð stjórnenda spítalans til heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra kemur fram að spítalinn þurfi 27,7 milljarða á verðlagi næsta árs til að halda óbreyttum eða svipuðum rekstri. Að teknu tilliti til þess að spítalinn aflar um tveggja milljarða í sértekjur af sjúklingagjöldum, þarf hann því um 25,7 milljarða á fjárlögum. Inn í því eru þær 700 milljónir sem átti að spara í haust. Spítalinn er þegar kominn einu prósenti fram úr fjárhagsáætlun þessa árs. Af þeim þremur prósentum sem hann átti að spara hefur því náðst að draga saman seglin um tvö prósent. Þetta eitt þýðir talsverðan niðurskurð á spítalanum í haust og ef að líkum lætur einhverjar uppsagnir. Stjórnendur spítalans hafa þegar gert áætlanir um hvernig brugðist verði við ef ekki verði komið til móts við þá á fjárlögum. Pálmi Ragnar Pálmason formaður stjórnarnefndar Landspítalans segir að Heilbrigðisráðuneytið og Fjármálarráðuneytið hafi gefið tilefni til bjartsýni. Það sé þó ekki hægt að slá því föstu fyrr en fjárlögin líti dagsins ljós á föstudag.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira