Innlent

Sigruðu Frakka í skák

Íslendingar voru sigursælir á árlegu skákmóti öldungadeildar franska þingsins í París um helgina. Ísland sigraði Frakkland 3-1 í landskeppni og síðan sigraði Helgi Ólafsson í hraðskákmóti fjögurra stórmeistara frá hvoru landi. Sigraði Helgi franska stórmeistarann Laurent Fressinet í úrslitaskák í gær. Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák var verndari mótsins ásamt Halldóri Blöndal, forseta Alþingis. Mótið er haldið í tengslum við viðamikla tveggja vikna Íslandskynningu sem hefst formlega í Paris í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×