Innlent

Stöð2 braut jafnréttislög

Íslenska útvarpsfélagið og yfirmenn fréttastofu Stöðvar 2 brutu jafnréttislög fyrir rúmu ári þegar þeir sögðu fjórum fréttakonum upp. Engum karlmanni í sambærulegu starfi var sagt upp. Ástæður uppsagnanna voru sagðar hagræðing og að starfsaldur hefði ráðið mestu um uppsagnirnar, en þó ekki öllu. Frekari rök voru þó ekki tilgreind. Í það minnsta þrír karlar með styttri starfsaldur en konurnar störfuðu á fréttastofunni á þessum tíma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×