Innlent

Hasskötturinn og sköpunargáfan

Á morgun hefst Evrópukeppni ungra vísindamanna á Írlandi og stendur til 30. september. Tvö íslensk verkefni taka þátt í keppninni, annars vegar verkefnið "Hasskötturinn" og hins vegar verkefni um "Áhrif umhverfis á sköpunargáfu". Fulltrúar landsins eru vinningshafar í Landskeppni ungra vísindamanna á Íslandi árið 2004 sem fór fram í Háskólanum 19. maí. Verkefnið "Hasskötturinn" fjallar um hvort unnt sé að nota ketti til að leita að fíkniefnum, en að baki verkefninu eru Elísa Guðrún Brynjólfsdóttir, Eva María Þrastardóttir og Stefán Þór Eysteinsson, nemendur í Verkmenntaskóla Austurlands. Leiðbeinendur þeirra eru Þórður Júlíusson og Gunnar Ólafsson. " Áhrif umhverfis á sköpunargáfu" kannar hvort umhverfi hafi áhrif á sköpunargáfu vélmenna. Að verkefninu stendur Hrafn Þorri Þórisson, nemandi við Fjölbrautarskólann við Ármúla, en leiðbeinandi hans er Ólafur H. Sigurjónsson. Í gær var skrifað undir samstarfssamning Rannsóknarþjónustu Háskóla Íslands, Íslandsbanka og Sjóvár-Almennra sem tryggja á verkefninu "Ungir vísindamenn á Íslandi" 1,5 milljónir króna árlega næstu þrjú árin. Stuðningurinn er sagður grundvöllur og forsenda fyrir framgangi verkefnisins á komandi árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×