Innlent

Tryggingastofnun sýknuð

ASÍ höfðaði í ársbyrjun mál á hendur TR og setti fram kröfur um að viðurkennt yrði með dómi að foreldrar í aðildarfélögum ASÍ, sem ávinna sér ekki rétt á orlofslaunum í launalausu fæðingarorlofi úr hendi launagreiðanda, eigi rétt á orlofslaunum úr Fæðingarorlofssjóði. Tryggingastofnun hafnaði kröfunni og Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú tekið undir þann rökstuðning að orlofslaun greiðist eingöngu vegna launageiðslna, ekki af orlofslaunum, og því greiðist orlofslaun ekki vegna greiðslna í fæðingarorlofi. Í dómnum segir að ekki verði fallist á að lög eða aðrar reglur leiði til þess að foreldrar eigi þann rétt sem Alþýðusambandið krefst í málinu að verði viðurkenndur. Málskostnaður var felldur niður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×