Innlent

Fylgst með "orkufólki"

Landlæknisembættið fylgist með framvindu mála hvað varðar "orkufólkið" svokallaða hér á landi, að sögn Sigurðar Guðmundssonar landlæknis. Aðstandendur þeirra sem sótt hafa svokölluð orkunámskeið hafa kvartað til embættisins. Landlæknir tjáði Fréttablaðinu að tengiliður þeirra Lydiu og Stephen Kane, sem staðið hafa fyrir orkunámskeiðunum hér, yrði kallaður fyrir embættið á allra næstu dögum. Tengiliðurinn umræddi er Gitte Larsen sem búsett hefur verið hér á landi um árabil. Þá hefur stjórn Geðhjálpar fundað um málið, að sögn Sveins Magnússonar framkvæmdastjóra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×