Innlent

Aukinn kraftur í söfnunina

Í apríl hófst söfnunin "Þitt framlag skiptir máli" þar sem Krabbameinsfélag Íslands og KB banki sameinast um söfnun velunnara fyrir Krabbameinsfélagið. Auk þess að skrá sig á afgreiðslustöðum bankans getur fólk nú hringt í Krabbameinsfélagið í síma 540 1900 og skráð sig sem velunnara félagsins með reglulegu framlagi. Stefnt er að því að safna 3.000 nýjum velunnurum. KB banki er aðalstyrktaraðili Krabbameinsfélagsins, en bankinn hefur heitið því að leggja fram 500 krónur fyrir hvern sem bætist í hóp velunnara.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×