Í hóp þeirra bestu á ný 21. nóvember 2004 00:01 "
Ég er mjög stoltur af strákunum eftir þetta mót enda hafa þeir allir sem einn lagt sig virkilega fram og uppskera eftir því," segir Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, eftir sigur liðsins á Slóveníu á Heimsbikarmótinu sem lauk í gær. Ísland lenti þar í fimmta sæti en átta bestu handboltalið heims tóku þátt. Leikurinn gegn Slóvenum var vel leikinn í alla staði en jafnt var með liðum í hálfleik, 18-18, og fátt sem benti þá til að Ísland myndi sigra með fimm marka mun þrjátíu mínútum síðar. Stórleikur þeirra Róberts Gunnarssonarog Rolands Eradze í markinu lagði grunninn að öruggum sigri liðsins en allir leikmenn liðsins skiluðu frábæru dagsverki og var um sannkallaðan liðssigur að ræða. Viggó var afar ánægður með leik liðsins og segir sjálfur að hópurinn hafi komið sér á óvart. "Það var lagt upp með mjög breyttan hóp hingað í upphafi. Margir strákanna þekktust vart og þekktu mig kannski lítið líka. Með það í huga og að við fengum ekki mikinn tíma til æfinga fyrir fram er fimmta sætið fyllilega ásættanlegt og ég get með sanni sagt að við lékum vel í öllum leikjunum nema einum. Miklu skipti að strákarnir öðluðust trú á sjálfa sig þegar á mótið leið og sjálfstraustið eftir sigurinn á heims- og ólympíumeisturum Króatíu á laugardaginn var í hámarki. Það hafði mikið að segja gegn Slóvenum." Róbert Gunnarsson, sem stóð sig frábærlega allt mótið, var verðskuldað valinn í lið mótsins þegar því lauk en Róbert varð enn fremur markakóngur mótsins. Úrslitaleikurinn fór fram milli Svía og Dana og lyktaði með sigri heimamanna, 27-23. Viggó segir að þessi sami hópur og stóð sig framar vonum á þessu móti verði að öllu jöfnu það lið sem hann byggir á fyrir heimsmeistarakeppnina sem fram fer í Túnis á næsta ári. Með þá Ólaf Stefánsson og Sigfús Sigurðsson að auki í liðinu eru bjartir tímar fram undan hjá landsliðinu í handbolta. albert@frettabladid.is
Íþróttir Mest lesið Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Fótbolti Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Fótbolti Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf HM-maður dagsins: Vann í verksmiðju og lætur leiðindi þjálfarans ekki stöðva sig Fótbolti Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti Fleiri fréttir HM-maður dagsins: Vann í verksmiðju og lætur leiðindi þjálfarans ekki stöðva sig Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Sjá meira