Erum ekki kynþáttahatarar 17. júní 2004 00:01
Biskup áminnti þjóðina um að sýna umburðarlyndi í hátíðarguðþjónustu í Dómkirkjunni í dag. Í ræðu sinni lagði hann út af forsíðu blaðins Reykjavík Grapevine, en hana prýðir þeldökk kona íklædd þjóðbúningi Íslendinga. Eins og fram hefur komið í fréttum stöðvar 2 var það ekki heiglum hent að fá hátíðarbúning á konuna sem prýðir forsíðuna að láni. Þegar blaðið lýsti hugmyndum sínum um notkun búningsins fyrir umsjónarkonu búningaleigu Þjóðdansafélags Reykjavíkur lét hún í ljós að henni þætti hugsanlegt að vegið væri að heiðri búningsins og notkunin væri vart viðeigandi. Þetta staðfestir stjórn Þjóðdansafélagsins. Bendt Petersen, formaður félagsins segist harma þá umræðu sem upp er komin og hefur áhuggjur af framtíð félagsins. Hann segir að félaginu hafi borist fjöldi bréfa þar sem þau séu kölluð kynþáttahatarar og ýmsum ókvæðisorðum. Í fréttatilkynningu frá Þjóðsdansafélagi Reykjavíkur vegna málsins segir meðal annars að félagsmenn hafi lengst af mátt sitja undir því að vera bæði púkó og hallærisleg og þau beiðist nú undan því að að vera stimpluð sem kynþáttahatarar. Bendt sagði að félagið hefði ekki neitað blaðinu um búninginn heldur hefðu þau dregið hugmyndina í efa. Þau hefðu reynslu af því að búningar hefðu verið misnotaðir. Þegar hann var spurður nánar út í ástæður félagsins sleit hann viðtalinu. Hann dansaði þjóðdansa á Árbæjarsafni í dag. Þeir sem klæddust þjóðbúningum þurftu engan aðgangseyri að greiða og fólk af erlendum uppruna var hvatt til að mæta í þjóðbúningi síns heimalands.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Haraldur Briem er látinn Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Erlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Sjá meira