Innlent

Íslendingar særðust í sprengjuárás

Tveir íslenskir friðargæsluliðar særðust í sprengjuárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í dag og einn hlaut minniháttar skrámur í árásinni. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að málsatvik hafi verið þau að fjórum handsprengjum, að því er talið er, hafi verið kastað að hópi friðargæsluliða sem í voru íslenskir friðargæsluliðar, einn bandarískur og einn tyrkneskur. Þrjár þeirra sprungu. Þeir sem særðust heita Stefán Gunnarsson, sem starfar í flugumsjón á Kabúl-flugvelli, og Steinar Örn Magnússon slökkviliðsmaður. Sá sem hlaut minniháttar skrámur heitir Sverrir Haukur Grönli slökkviliðsmaður. Aðrir Íslendingar sem í hópnum voru eru Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður flugvallarins, Ásgeir Ásgeirsson lögreglumaður og Friðrik Már Jónsson flugumferðastjóri. Þeir sem særðust hafa fengið aðhlynningu á þýsku hersjúkrahúsi í útjaðri borgarinnar. Meiðsl Stefáns og Steinars Arnars eru ekki talin alvarleg. Samkvæmt fréttaskeyti Reuters hafa Talibanar lýst ábyrgð á tilræðinu á hendur sér. Samkvæmt frétt Reuters var um sjálfsmorðsárás að ræða og er fleiri árásum hótað. Samkvæmt fréttinni særðust að minnsta kosti sjö manns í árásinni.
MYND/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×