Innlent

Tannlæknar vilja ábyrga stefnu

Tannlæknar kalla eftir ábyrgri stefnu stjórnvalda í tannheilsumálum. Á málþingi sem Tannlæknafélag Íslands gekkst fyrir í morgun var fjallað um eldri borgara og þeirri spurningu velt upp hvort að þeir væru afskiptir í tannlæknaþjónustu. Bent er á að eldri borgurum með eigin tennur fjölgi, þeir þurfi hins vegar á mikilli viðhaldsvinnu að halda og því standi þeir einfaldlega frammi fyrir því að ódýrara er fyrir þá að láta rífa úr sér tennurnar heldur en að nýta þá meðferð sem hægt er að bjóða upp á. Heimir Sindrason, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir auðvitað lang ódýrast að láta rífa úr sér tennurnar því það sé eins og að gera ekki neitt. Með því að hafa þá stefnu sé hins vegar verið að stinga höfðinu í sandinn.   Heimir segir framlög til þessarra mála ekkert hafa hækkað, þrátt fyrir að hópurinn sem verið er að greiða fyrir hafi stækkað. Með öðrum orðum: þeim sem þurfa sneið af kökunni hefur fjölgað en kakan hefur ekkert stækkað.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×