Skaðsemi áfengisdrykkju mæðra 21. júlí 2004 00:01
Eitt af hverjum hundrað börnum skaðast vegna þess að móðirin hefur neytt áfengis á meðgöngu. Þá getur jafnvel lítil drykkja leitt til námserfiðleika og andlegra truflana. Skaðinn sem áfengisneysla móður getur valdið ófæddu barni hennar getur orðið mjög mikill. Sé áfengis neytt á fyrstu vikum meðgöngu getur það komið fram sem vansköpun í andliti, smár vöxtur barnsins og jafnvel greindarskortur. Áhrifin eru önnur þegar áfengi er drukkið á seinni hluta meðgöngu. Þá eru afleiðingar oft námserfiðleikar, hegðunarvandamál, minnisvandamál, athyglisbrestur og ofvirkni að sögn Sólveigar Jónsdóttur, taugasálfræðings og eins helsta sérfræðings landsins um málið. Hún segir þetta erfiðleika sem barnið þurfi að lifa við alla ævi því þetta eldist ekki af því. Sólveig segir komið hafa í ljós að tíðni þessara einkenna er hærri í þeim löndum þar sem áfengisneysla er meiri. Rannsóknir í Bandaríkjunum og Svíþjóð hafi sýnt að u.þ.b. níu af hverjum þúsund börnum bera þessi einkenni og sé ekki óvarlegt að ætla að hið sama eigi við hér á landi. Margir telja að þessi skaði sé bundinn við ofdrykkju en rannsóknir hafa sýnt ótvírætt að lítil eða hófleg drykkja getur einnig valdið skaða. Verðandi mæður eru því eindregið varaðar við því að neyta áfengis, bæði á meðgöngu og meðan barnið er á brjósti. Myndin er úr myndasafni.
Fréttir Innlent Mest lesið Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fleiri fréttir Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sjá meira