Hættan liðin hjá í bili 6. ágúst 2004 00:01
Varnargarður sá er óttast var að brysti í miklum vatnavöxtum í Jökulsá á Dal í fyrrakvöld hélt og telja forsvarsmenn Impregilo og Landsvirkjunar að ekki sé lengur mikil hætta fyrir hendi. Her manna hefur síðustu sólarhringa unnið að því að styrkja garðinn en hann skilur milli árinnar og vinnusvæðisins við sjálfa Kárahnjúkastíflu. Lekið hefur undir varnargarðinn um langt skeið en slíkt er eðlilegt og sáu dælur um að dæla frá jafnóðum. Í fyrrakvöld varð álagið svo mikið að allar tiltækar hendur voru settar í að styrkja garðinn. Óttast var að svipað yrði upp á teningnum í gærkvöld en þar sem alskýjað var á Austurlandi urðu vatnavextir Jökulsár minni en kvöldið áður. Hjá Impregilo er þó allur vari hafður á þar sem veðurspár gera ráð fyrir betra veðri næstu daga og verður unnið á sólarhringsvöktum að breikkun varnargarðsins. "Vissulega fór um marga hér þegar hækkaði jafn ört í ánni og raunin varð," segir Leó Sigurðsson öryggisstjóri ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo sem sér um framkvæmdir við Kárahnjúka. "Um leið og ljóst varð að hætta var fyrir hendi var strax gripið til aðgerða og þær hafa skilað sér. Garðurinn er nú mun sterkari og breiðari en hann var áður og hættan að mestu leyti liðin hjá." Brúin yfir Jökulsá við Kárahnjúka sem tvívegis hefur farið undir vatn síðustu daga heldur enn. Hún hefur skemmst en tekist hefur að forða því að brúargólfið fljóti burt. Í gærkvöld náði vatnsborð Jökulsár aðeins upp undir hana en setti ekki í kaf eins og undanfarin kvöld. Unnið er að því að færa rafmagnskapal þann er við hana var festur á staura yfir ána ef ske kynni að brúin færi. Líkurnar á því telja menn hverfandi nema að straumþungi Jökulsár grafi frá undirstöðum hennar. Slíkt hefur ekki átt sér stað hingað til.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira