Nefndarlaun upp á yfirborðið 6. ágúst 2004 00:01
Stjórnarandstaðan er sammála um að það þurfi að breyta lögum til þess að ekki sé hægt að halda því leyndu hvað menn fá borgað fyrir að sitja í nefndum á vegum ríkisins. Raunar telja sumir þingmenn að úrskurðarnefnd upplýsingamála mistúlki lögin. Sumum þykir nokkuð skrítið að hægt sé að gefa út heilt sérblað um skattagreiðslur almennra skattborgara, og þær upplýsingar liggi á lausu hjá Ríkisskattstjóra, en um leið sé harðbannað að gefa upp hvað nokkrir einstaklingar hafi í kaup fyrir nefndarsetu hjá ríkinu. Úrskurðarnefnd upplýsingamála hefur staðfest rétt forsætisráðuneytisins til þess að neita DV um upplýsingar um greiðslur til 328 manna sem áttu sæti í nefndum á vegum ráðuneytisins á árunum 2001-2003. Stjórnarandstaðan er nokkuð sammála um að þetta sé ófært og þessar upplýsingar eigi að vera hluti af gegnsæi í ríkisrekstrinum. Við svo búið megi ekki una. Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir sjálfsagt að þessar upplýsingar séu opinberar. Hins vegar telur hann úrskurðarnefndina hafa komist að réttri niðurstöðu út frá núverandi laganna hljóðan. Þingmaðurinn vill að lögunum sé breytt, t.d. með þeim hætti að þeim sem byðust ákveðin störf fyrir hið opinbera, þar sem þeir fá greitt úr ríkissjóði, yrði gerð grein fyrirfram að ef óskir berust um upplýsingar um laun, þá séu þær veittar. Magnús Þór segist tilbúinn til þess að taka þátt í hverri þeirri málsmeðferð sem færði þetta upp á yfirborðið. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er þeirrar skoðunar að úrskurðarnefndin mistúlki lögin þegar hún neiti fjölmiðlum um aðgang að þessum upplýsingum. Jóhanna hefur birt lögfræðiálit, máli sínu til stuðnings, á vefsíðu sinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Sjá meira