Lögregla afhendir rannsóknargögn 9. júní 2004 00:01
Hæstiréttur hefur dæmt lögreglustjórann í Reykjavík til að afhenda verjanda útlendings, sem er grunaður um að tengjast ólöglegum fólksflutningum til Vesturheims, rannsóknargögn í málinu. Maðurinn er í hópi þriggja útlendinga af arabískum uppruna sem sitja í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handteknir með stolin og fölsuð vegabréf. Lögreglu grunar að þeir tengist skipulagðri alþjóðlegri glæpastarfsemi sem snýst fyrst og fremst um fólksflutninga til Kanada og Bandaríkjanna. Mennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 16. júní. Lögreglan neitaði verjendum mannanna um að fá rannsóknargögnin í hendur og Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á þá ákvörðun með vísan til rannsóknarhagsmuna, brotin væru óupplýst og misræmis gætti í því sem fyrir lægi í málinu. Einn af verjendunum, Jón Einar Jakobsson lögmaður, kærði þennan úrskurð til Hæstaréttar og hafði erindi sem erfiði. Hæstiréttur bendir á þá meginreglu að verjandi skuli jafnskjótt og unnt er fá endurrit af öllum skjölum varðandi málið. Lögreglan hafi heimild vegna rannsóknarhagsmuna að draga það í viku og dómari getur - þegar svo ber undir - framlengt þann frest um þrjár vikur. Hæstiréttur telur hins vegar að skilyrðin séu ekki uppfyllt í þessu tilviki til að neita lögmanni hins grunaða um aðgang að gögnum málsins. Útlendingurinn, sem lögregu hefur ekki tekist að bera kennsl á svo að óyggjandi sé, hefur ekki verið leiddur fyrir dóm til að gefa skýrslu. Lögreglu finnst það ekki tímabært. Hæstiréttur er á öðru máli og segir að lögreglan hafi haft nægilegt ráðrúm til að fara fram á skýrslutöku fyrir dómi. Úrskurður Héraðsdóms er því felldur úr gildi og lögreglunni gert skylt að afhenda lögmanninum gögnin.
Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira