Metfjöldi ferðamannna 10. ágúst 2004 00:01
Erlendir ferðamenn settu heimsóknarmet hingað til lands í síðasta mánuði þegar rösklega sextíu og fjögur þúsund útlendingar heimsóttu landið, en þeir kaupa minna hér en áður. Það er hátt í tólf þúsund fleiri ferðamenn en í júlímánuði í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálaráðs í Leifsstöð. Ef litið er á fyrstu sjö mánuði ársins hafa tæplega 30 þúsund fleiri ferðamenn komið til landsins það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra sem er um það bil sautján prósenta aukning. Það er aukning umfram spár. Fyrstu sex mánuði ársins komu lang flestir ferðamannanna frá Bretlandi, eða um 35 þúsund manns, sem er rösklega tíu prósenta fjölgun frá í fyrra. Bandaríkjamenn koma næstir, 28.500 talsins, sem er rúmlega níu prósenta fjölgun. Fjölmargir Norðurlandabúar komu hingað, flestir frá Danmörku, eða tæp 20 þúsund, sem skipar Dönum í þriðja sæti á heildarlistanum og þar nam aukningin röskum 35 prósentum. Í prósentum var aukningin mest frá Japan, eða 86 prósent, en heildarfjöldinn var hins vegar ekki nema tæp fjögur þúsund. Samkvæmt tölum Iceland Refund, sem sér um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til erlendra ferðamanna, hafa þau umsvif aðeins aukist um tíu prósent þótt fjöldinn hafi aukist um sautján prósent. Bandaríkjamenn vega lang þyngst á þessu sviði, fá endurgreitt rúm 20 prósent af öllum endurgreiðslum, sem auðvitað endurspeglar kaup þeirra. Þeir kaupa að jafnaði varning sem þeir geta fengið vaskinn endurgreiddan af fyrir um sex þúsund krónur hver maður. Norðmenn koma næst með fimm þúsund, Svíar eru þar alveg á hælum þeirra og síðan Danir með tæp fjögur þúsund á mann.
Fréttir Innlent Mest lesið „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Fleiri fréttir Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Sjá meira