Innlent

Grjóthnullungum rigndi

Grjóthnullungum rigndi yfir Borgartún og í hús Ríkiskaupa um klukkan þrjú í gærdag. Fjórar rúður brotnuðu og lenti grót á litlum fólksbíl sem lagt var í götunni og beyglaðist. Grjót, allt að tíu sentimetrar í þvermál, þeyttust allt að sjötíu metra og lágu á götunni. Menn frá Jarðvélum voru að sprengja fyrir tveggja hæða djúpum bílakjallarara sem á að standa undir nýju fjögurra hæða húsi á móti Ríkiskaupum, Borgartúni 7. Mikil mildi var að enginn átti leið um götuna þegar sprengingin varð. Óskar Borg var við störf í byggingu Ríkiskaupa þegar sprengingin varð. Honum varð óneitanlega brugðið. "Það komu skruðningar og ég heyrði brothljóð en það var miklu meiri hvellur og dynkur. Ég var hérna hinum megin í húsinu og ég tók strax eftir því að þetta var ekki eins og það átti að vera." Óskar segir engan hafa verið að vinna þeim megin í húsinu sem snýr að götunni. Hann segir ekki miklar skemmdir vera innanhúss en einn steinn hafi sloppið í gegn og inn á skrifstofu sem var mannlaus. Óskar átti bílinn fyrir framan bygginguna og segir að hann hefði lagt honum annars staðar hefði hann vitað af sprengingunum. Bjarni Kristjánsson sprengjustjóri segir alltaf hættu á að svona fari. Helst sé því kosið að sprengja á kvöldin eða um helgar. Þetta hafi gerst þar sem yfirbreiðsla yfir holurnar sjö sem geymdu um 20-30 kíló af dínamíti hafi ekki hulið svæðið nægilega vel. Tjónið sé ekki mikið og fyrirtækið tryggt fyrir því. Ráðstafanir verði gerðar svo þetta komi ekki fyrir aftur. "Við fáum betri yfirbreiðslur og tökum minna í einu svo það sé öruggt að það geti hvergi sloppið steinn." Pétur Guðmundsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar í Reykjavík, segir framkvæmdir hafa verið stoppaðar á meðan vettvangsrannsókn rannsóknardeildarinnar stóð yfir. Hún hafi skoðað hvað hafi misfarist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×