Innlent

Lækkaði um 3%

Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni lækkaði um tæp 3% í gær, sem er með því mesta sem gerist á einum degi. Þetta jafngildir því að markaðsvirði fyrirtækja í úrvalsvísitölunni hafi lækkað um tuttugu og níu milljarða króna. Vísitalan hefur verið að lækka undanfarna daga og segja fjármálasérfræðingar að það megi meðal annars rekja til þess hve gengið var orðið hátt og hinsvegar til mikils framboðs á nýjum hlutabréfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×