Innlent

Bíða félagsdóms

Áhöfn skipsins Sólbaks starfar undir sérsamningi útgerðar dótturfyrirtækis Brims þar til dómur fellur í félagsdómi. Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, segir þá útkljáð hvor þeir starfi áfram á samningnum eða hvort hann sé ólöglegur. Konráð segir að samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands eystra megi sjómannafélögin ekki stöðva löndun úr Sólbaki. Það haldi þar til niðurstaða félagsdóms sé ljós.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×