Yfirmaður sakaður um aðgæsluleysi 27. október 2004 00:01
Friðargæsluliðarnir íslensku sem urðu fyrir sjálfsmorðsárás í Kabúl síðastliðinn laugardag höfðu beðið yfirmanns síns fyrir utan teppaverslun á Chicken street í klukkustund þegar árásin var gerð. Heimildir Fréttablaðsins herma að friðargæsluliðarnir hafi verið uggandi og hafi hafi fjórum sinnum reynt að reka á eftir yfirmanni sínum enda hefði þeim verið ljóst að þessi gata væri talin afar hættuleg. Hluti íslensku friðargæsluliðanna stóðu fyrir utan verslunina vopnaðir, íklæddir einkennisklæðum og óku ökutæki merktu friðargæsluliðs NATO. Vestræn sendiráð og hjálparstofnanir hafa varað starfsmenn sína við að fara um svokallað Chicken street, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Tveir létust í sprengjutilræðinu á laugardag, 23 ára amerísk kona og 11 ára gömul afgönsk stúlka auk tilræðismannsins. Fréttablaðið kynnti Hallgrími Sigurðssyni, ofursta yfirmann íslenska friðargæsluliðsins í Kabúl efnisatriði þessarar fréttar í gærkvöldi en símasamband við hann slitnaði. Atburðarásin í kringum árásina verður könnuð, að sögn Gunnars Snorra Gunnarssonar, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu. Hann segist ekki hafa neinar upplýsingar um hversu lengi verslunarferð Hallgríms hafi staðið yfir eða hvort undirmenn hans hafi verið uggandi um stöðu sína. "Til mín hafa ekki borist skriflegar skýrslur um atburðinn og heldur ekki kvartanir frá mönnum í friðargæsluliðinu. Við förum yfir þetta með eigin yfirmönnum og í ráðgjöf við aðra sem vinna á staðnum." Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar, segir að yfirlýsing sem hann lét falla um að íslensku friðargæsluliðarnir færu ekki út af flugvellinum nema að brýna nauðsyn bæri til hafi verið gefin í upphafi verksins. Síðan þá hafi hlutirnir breyst.
Fréttir Innlent Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Fleiri fréttir Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Sjá meira