Friðargæslan var í einkaerindum 27. október 2004 00:01
Yfirmaður íslenska friðargæsluliðsins í Kabúl var að kaupa teppi þegar sjálfsmorðsárás var gerð á friðargæsluliðana sem fylgdu honum. Friðargæsluliðar eru óánægðir með að hafa þurft að leggja sig í hættu af slíku tilefni. Utanríkisráðuneytið gerir engar athugasemdir við ferðir yfirmannsins og hefur engar upplýsingar um óánægjuna. Friðargæsluliðarnir þrír, sem særðust í árásinni, eru á heimleið eftir að hafa verið heiðraðir fyrir hugrekki og fumlaus viðbrögð þegar þeir urðu fyrir sjálfsmorðsárás talibana um síðustu helgi á fjölfarinni verslunargötu í miðborg Kabúls sem heitir Kjúklingastræti. Fréttastofan hefur fengið staðfest að Hallgrímur Sigurðsson, sem stjórnar flugvellinum í Kabúl, hafi verið í einkaerindum að velja og kaupa teppi þegar ráðist var á fylgdarlið hans, íslensku friðargæsluliðana, sem biðu úti í bíl. Utanríkisráðuneytið gerir engar athugasemdir við þessar ferðir yfirmannsins, sem höfðu þó mjög alvarlegar afleiðingar; tveir vegfarendur létust auk árásarmannsins. Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar og talsmaður utanríkisráðuneytisins í þessu sambandi, afþakkaði viðtal í dag, þrátt fyrir ítrekaða beiðni, en lætur hafa eftir sér að íslensku friðargæsluliðunum sé heimilt að fara þar um sem yfirstjórn friðargæslunnar í Kabúl hafi ekki með skýrum og ákveðnum hætti bannað ferðir um. Segir Arnór að hafa beri í huga að slíkir atburðir, eins og sjálfsmorðsárásin um helgina, geti orðið hvar sem er í Kabúl, til dæmis í umferðarteppu sem sé ekki óalgeng í borginni. Fréttastofan hefur upplýsingar um að friðargæsluliðarnir séu afar óánægðir með að þurfa að leggja sig í hættu vegna einkaerinda yfirmanna en þeir verði að fylgja þeim til að gæta öryggis. Eins og þetta dæmi sanni leggi þeir jafnframt aðra í hættu með því að vekja á sér athygli og laða til sín hryðjuverkamenn. Tilefni til slíkra ferða þurfi því að vera ærið. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar voru íslensku friðargæsluliðarnir löngu teknir að ókyrrast þegar sprengjuárásin var gerð og höfðu gert yfirmanni sínum viðvart um að þeir hefðu dvalið of lengi á sama stað; það skapaði hættu. Utanríkisráðuneytið synjaði fréttastofunni í dag um skýrslu, sem því var sent um árásina, sem sýnir tímasetningar og önnur atvik.
Fréttir Innlent Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Sjá meira