R-listinn ábyrgur fyrir slysum 21. september 2004 00:01
Það ætti löngu að vera búið að gera mislæg gatnamót við Miklubraut og Kringlumýrarbraut að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. "Niðurstaða könnunarinnar kemur mér því ekki á óvart því þetta eru fjölförnustu gatnamót landsins þar sem áttatíu til níutíu þúsund bílar fara um á hverjum degi," segir Vilhjálmur. "Ef R-listinn ætlar að halda því til streitu að velja ekki besta kostinn verður að gera hann ábyrgan fyrir þeim umferðarslysum sem við getum komið í veg fyrir. R-listinn tók þetta út af skipulagi 1996 og setti þetta aftur inn 2001. Það er greinilegt að hugur fylgir ekki máli og nú stillir hann verkefnunum upp hvoru gegn öðru sem er rangt." Vilhjálmur segir að í vegaáætlun frá 2002 til 2006 sé gert ráð fyrir fjárframlögum til Sundabrautar sem og til byggingar mislægra gatnamóta við Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Í áætluninni sé tekið fram að framkvæmdum við mislægu gatnamótin verði hraðað sem kostur er. Vilhjálmur segir að auðvitað verði til bóta að laga gatnamótin með fjölgun akreina og beygjuljósa en það sé hins vegar ekki framtíðarlausn. Slík lausn minnki umferðartafir um 15 prósent og fækki umferðaróhöppum um 30 til 50 prósent. Hann segir að ef gerð verði mislæg gatnamót minnki umferðartafir um allt að 70 prósent og umferðaróhöppum fækki um allt að 80 prósent.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira