Skriður féllu úr fjallshlíðum 21. september 2004 00:01
Skriður féllu úr fjallshlíðum sumstaðar á Norðurlandi í nótt í úrhellisrigningu sem víða er enn. Miklar skemmdir hafa orðið á veginum í Ólafsfjarðarmúla og er óvíst hvenær hægt verður að opna hann fyrir umferð á ný. Þar féllu þónokkrar skriður og á veginn á nokkrum stöðum. Meðal annars sópuðust vegrið af vegkantinum og sumstaðar varð vegurinn svo vatnsósa að stórar skakir hreinlega skoluðust úr honum. Að sögn vegagerðarmanna er mikill vatnsagi á svæðinu og aðstæður því varasamar en ljóst er að framundan eru miklar framkvæmdir við hreinsun og vegabætur. Með öllu er óljóst hvort vegurinn verður fær fyrir kvöldið en nú er aðeins fært á milli Ólafsfjarðar um Lágheiði í Skagafjörðinn. Talið er að stærsta skriðan sé allt að 50 metra breið og tveggja metra djúp en að sögn vegagerðarmanns eru skriður af þeirir stærðargráðu afar fátíðar á þessum slóðum. Þess má geta að þetta er Dalvíkurmegin við Ólafsfjarðargöngin. Þá hefur stór skriða falllið á þjóðveginn norðan við Bjarnarfjörð á Ströndum en ekkert verður farið að eiga við hana fyrr en á fimmtudag. Í morgun lokuðust svo þrír bæir af á Reykjaströnd, norðan við Sauðárkrók, í morgun eftir að aurspýjur féllu á veginn. Hann er orðinn fær en víða má sjá ár eftir spýju í hlíðum Tindastóls og í brattanum niður undir láglendi virðist jarðvegurinn hreinlega hafa sigið niður undan vatnsaganum. Sex ár eru síðan umtalsverð skriða féll úr Tindastóli. Ár og lækir hafa víða bólgnað upp en ekki svo tjón eða vandræði hafi hlotist af svo vitað sé. Spáð er að draga fari úr rigningunni upp úr hádegi.
Fréttir Innlent Mest lesið Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Innlent Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir Innlent Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Fleiri fréttir Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Sjá meira