Úkraínumanni vísað úr landi 16. desember 2004 00:01
Nýkvæntum 23 ára gömlum Úkraínumanni var vísað úr landi í lok nóvember þar sem hann hafði dvalið ólöglega í landinu um hríð. Maðurinn hafði sótt um makaleyfi í maí síðastliðnum, skömmu eftir að hann kvæntist íslenskri konu. Útlendingastofnun synjaði manninum um leyfið eftir að hann hafði ekki lagt fram umbeðin gögn. Hildur Dungal, forstöðumaður stjórnsýslusviðs Útlendingastofnunar, segir að maðurinn hafi komið til landsins haustið 2003. Þá hafi hann fengið námsmannaleyfi á grundvelli þess að hann hafi ætlað að stunda nám í Háskóla Íslands. Það leyfi hafi síðan runnið út síðasta vetur þar sem hann hafi ekki lengur uppfyllt skilyrðin fyrir því. Í framhaldinu hafi maðurinn sótt um makaleyfi. "Honum var synjað um leyfið á grundvelli þess að hann var ekki orðinn eldri en 24 ára eins og kveðið er á um í lögum," segir Hildur. "Synjunin var kærð en dómsmálaráðuneytið staðfesti synjunina. Eftir það fóru hjónin fram á að við myndum endurskoða málið. Til þess að gera það þurftum við að fá upplýsingar eða gögn um eitthvað nýtt sem studdi mál hjónanna.Við gáfum þeim færi á að leggja fram ný gögn en þau gerðu það ekki. Á endanum gátum við ekki beðið lengur og urðum því að vísa manninum úr landi því hann hafði verið svo lengi hér án leyfa. Forsendan fyrir brottvísun hans úr landinu var því ólögleg dvöl hans í landinu." Hildur segir að þó einhverjum sé synjað um makaleyfi þýði það ekki að viðkomandi geti ekki sótt um annars konar leyfi. Maðurinn hefði því getað sótt um framlengingu á námsmannaleyfi eða dvalar- og atvinnuleyfi hefði hann viljað vera hér áfram. Honum hafi verið bent á þann möguleika en hann hefði ekki nýtt hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira