Voru komnir óþægilega nálægt 16. október 2004 00:01
Æfingar rússneska flotans voru óþægilega nærri ströndum landsins, að mati íslenskra stjórnvalda. Því var beðið um upplýsingar frá rússneskum stjórnvöldum. Flotinn hefur lokið æfingum sínum og er farinn. Rússnesk stjórnvöld segjast ekki hafa ætlað að ógna öryggi landsins. Skipin hafa undanfarna daga verið á Þistilfjarðargrunni. Eitt þeirra, beitiskipið Pétur mikli, er kjarnorkuknúið, og hernaðarsérfræðingar hafa fullyrt undanfarið að hætta stafi af því hversu ástand rússneska flotans sé bágborið. Íslensk stjórnvöld óskuðu eftir skýringum rússneska sendiráðsins síðastliðinn mánudag, og síðan við rússneska utanríkisráðuneytið í gær. Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra segir að stjórnvöld hafi ekki áttað sig á því að Rússarnir ætluðu að vera svo nálægt landi og þegar svo langur tími hafi liðið án þess að skipin færu, hafi þótt rétt að óska frekari skýringa. Svar barst í morgun, þar segir að æfingunni hafi lokið í gær, og tekið fram að hún hafi ekki átt að ógna öryggishagsmunum landsins. Illugi segir eðlilegt að gerðar séu athugasemdir við það hve nálægt landinu Rússarnir hafi verið, enda sé um herskip að ræða. Vinstri grænir gagnrýna að íslensk stjórnvöld hafi ekki einfaldlega beðið Rússana eindregið og strax um að fara. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri Grænna segir að vissulega hafi þeir rétt á að fara um alþjóðlega siglingaleið, en málið horfi öðruvísi við þegar skipin liggi við strendur landsins vikum saman. Hann segir það misskilning að flotinn sé utan íslenskrar lögsögu, þó að hann sé utan landhelginnar. Rússarnir hafi verið djúpt inni í íslensku lögsögunni, þar sem við förum með réttindi að ýmsu leyti og eigum meðal annars að tryggja að ekki eigi sér stað mengun þar.Málið verður rætt á Alþingi á mánudag, og verður dómsmálaráðherra til andsvara.
Fréttir Innlent Mest lesið Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Leitin ekki enn borið árangur Innlent Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Erlent Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Innlent Sendir tvö þúsund þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles Erlent Leita týnds göngumanns Innlent Hundruð milljóna um allan heim muni eignast færri börn en þau vilja Erlent „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Innlent Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Innlent Fleiri fréttir Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árasarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára „Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Leitin ekki enn borið árangur Reyndi að stinga lögreglu af á stolnum bíl Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Ástand í Kaliforníu og breytt frumvarp um kílómetragjald Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Sjá meira