Innlent

Fimm ára afmæli Krafts

Lífið er núna var yfirskrift fimm ára afmælishátíðar Krafts sem haldin var í miðborg Reykjavíkur í dag. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Félagsmenn hvöttu fólk til að fagna lífinu og minnast þess að átta þúsund Íslendingar sem greinst hafa með krabbamein eru á lífi á Íslandi í dag. Þá var eitt þúsund blöðrum sleppt í loftið frá Ingólfstorgi sem tákn um hversu mikilvægt það er að sleppa takinu á óttanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×