Sport

Lakers jafnaði metin

Los Angeles Lakers mörðu sigur, 99-91, á Detroit Pistons í öðrum leik lokaúrslita NBA-deildarinnar í körfubolta. Þar með er staðan jöfn, 1-1, en það verður að segjast eins og er að leikmenn Detroit voru klaufar og hentu frá sér unnum leik. Þeir voru sex stigum yfir, 83-89, þegar aðeins 47 sekúndur voru eftir. Í framhaldinu náði Shaquille O’Neal frákastinu eftir misheppnað skot Kobes Bryant og skoraði tveggja stiga körfu og fékk vítaskot að auki, semmerkilegt nokk, hann nýtti. Þá voru 35 sekúndur eftir. Detroit náði ekki að skora og Lakers fékk boltann og um leið síðustu sókn venjulegs leiktíma. Segja má að Detroit hafi gert nokkuð stór mistök í þessari lokasókn Lakers því liðið ákvað að brjóta ekki á öðrum af tveimur skelfilegum vítaskyttum, Shaquille O’Neal og nýliðanum Luke Walton, undir lokin en treystu þess í stað að Lakers næði ekki að setja niður þrist. Það er varasamt að taka slíka áhættu gegn liði sem er með leikmann að nafni Kobe Bryant innanborðs. Hann nærist á aðstæðum sem þessum og þegar aðeins 2,1 sekúnda var eftir af venjulegum leiktíma setti hann niður þristinn sem þurfti og tryggði þannig Lakers framlengingu. Í framlengingunni tók Lakers síðan völdin og skoraði 10 stig gegn aðeins 2 komu frá Pistons. Ekki er ólíklegt að þessi þriggja stiga karfa Bryants hafi verið snúningspunktur þessa einvígis því þau lið sem hafa tapað tveimur fyrstu heimaleikjunum í lokaúrslitum hafa aldrei náð að snúa dæminu sér í vil og verða meistarar. „Við höfum alltaf trú á því að Kobe geti gert kraftaverk þegar við þurfum á einu að halda, jafnvel þegar hlutirnir eru ekki að ganga alveg upp hjá honum,“ sagði Phil Jackson, þjálfari Lakers eftir leik. Atkvæðamestir hjá Lakers voru þeir mátar, Kobe Bryant, með 33 stig og sjö stoðsendingar, og Shaquille O’Neal, með 29 stig og sjö fráköst. Hjá Detroit var Chauncey Billups með 27 stig og níu stoðsendingar. Richard Hamilton kom næstur með 26 stig og átta fráköst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×