Rkið kosti atkvæðagreiðslu 14. júní 2004 00:01
Sveitarfélögin fara fram á það við forsætisráðherra að þurfa ekki að bera kostnað af þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Sé miðað við að atkvæðagreiðslan kosti á annað hundrað milljóna króna er áætlaður kostnaður sveitarfélaganna á milli 60 og 70 milljónir. Í stjórnartíðindum sem út komu í dag eru kynntar þær breytingar sem verða á útvarps- og samkeppnislögum samkvæmt fjölmiðlafrumvarpi forsætisráðherra og fyrirhugað er að þjóðin kjósi um. Allajafna er formálinn við lagabirtingar svohljóðandi: Forseti gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi. Blað er því brotið með þeim formála sem birtist með fjölmiðlalögunum, en þar segir: Forsætisráðherra gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi, en forseti Íslands synjað þeim staðfestingar. Undirskrift og innsigli er Davíðs Oddssonar. Eins og getið er um í stjórnarskrá fá frumvörp lagagildi þótt forseti neiti að staðfesta þau. Þau skulu þá fara svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu. Frekar er ekki fjallað um framkvæmd slíkrar þjóðaratkvæðagreiðslu, sem nú er fyrirhuguð í fyrsta sinn. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur farið fram á það við forsætisráðherra að þau taki ekki þátt í þeim kostnaði sem fylgir atkvæðagreiðslunni. Sambandið sendi forsætisráðherra bréf þessa efnis þar sem meðal annars segir að afstaða sambandsins hljóti að teljast afar eðlileg. Eftir sem áður sé ekkert sem útiloki það að sveitarfélögin annist framkvæmd atkvæðagreiðslunnar þótt kostnaðurinn verði greiddur af öðrum. Þórður Skúlason, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitastjórnarmenn lengi hafa verið þeirrar skoðunar að óeðlilegt sé að sveitarfélögin beri kostnað af alþingiskosningum og forsetakosningum og segist Þórður líta þjóðaratkvæðagreiðslu sömu augum. Forsætisráðherra hefur sagt að kostnaður við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu geti numið 100-200 milljónum króna. Af þeirri upphæð telur Þórður að kostnaður sveitarfélaga sé á milli 60 til 70 milljónir sem færu í að greiða kjörstjórnum laun, sem og þeim sem annast og sjá um framkvæmdir á kjördag. Þórður segir Samband íslenskra sveitarfélaga ekki ennþá hafa fengið svör við athugasemdum sínum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira