Eldsvoði í Njarðvík 14. júní 2004 00:01
Slökkviliðsmenn voru í mikilli hættu þegar þeir börðust við eld sem kviknaði á bifreiðaverkstæði í Njarðvík í nótt þar sem mikið var geymt af flugeldum í óleyfi. Karlmaður var við störf á bifreiðaverkstæðinu við Bolafót í Njarðvík þegar eldurinn kom upp en hann sakaði ekki. Nágrannar urðu eldsins varir um hálf tvö leytið en íbúðarhús eru í 100-200 metra fjarlægð frá iðnaðarhúsinu. Að sögn Guðmundar Björgvinssonar, sem varð vitni að eldsvoðanum, skíðlogaði upp úr þakinu og gassprengingar kváðu við. "Sprengingarnar voru nokkuð öflugar og þakið virtist opnast við þær. Síðan varð mikil flugeldasýning því mikið af flugeldum virðast hafa verið geymdir þarna inni," segir Guðmundur. Bifreiðaverkstæðið þar sem eldurinn kom upp er í þrískiptu iðnaðarhúsi. Þegar slökkvilið kom á vettvang var þegar gríðarlega mikill eldur og hafði hann borist í annan hluta húsnæðisins þar sem tjaldvagnaleiga er til húsa. Þar voru flugeldarnir voru geymdir og einnig gaskútar. Slökkviliðsmenn lögðu strax áherslu á að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist frekar út. Jón Guðlaugsson varaslökkviliðsstjóri segir flugeldana í raun og veru hafa sprungið í andlitið á slökkviliðsmönnunnum. "Það er alltaf hætta þegar maður veit ekki af svona efnum í húsum sem lenda í bruna," segir Jón. Lögregla vinnur nú að rannsókn málsins en talið er að eldurinn hafi kviknað á svæði í kringum loftpressu. Töluvert tjón varð í eldinum en sérstaklega alvarlegum augum er litið á geymslu flugelda sem hvergi voru skráðir. Slökkviliðsmenn hefðu gert sérstakar ráðstafanir hefðu þeir vitað af þeim en til allrar lukku voru þeir ekki komnir langt inn í húsið þegar flugeldarnir sprungu.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira