Innlent

Ameríkanar til Íslands fyrir 61$

Hundrað stálheppnir Ameríkanar eru á leið hingað til lands í sumarfrí á kostakjörum, og það fyrir mistök. Fjöldi viðskiptavina netferðskrifstofunnar Cheaptickets.com fékk flugmiða hingað til lands á hreint hlægilegu verði. Þeir kostuðu ekki nema sextíu og einn dollar eða sem nemur rúmum 4400 krónum. Eigendum Cheaptickets finnst þetta reyndar ekkert fyndið því það voru tölvumistök sem urðu þess valdandi að hundrað manns eru á leið hingað til lands á þessu sérstaka tilboði. Og ekki nóg með það, innifalinn er miði sem veitir aðgang að sundlaugum og Bláa lóninu á meðan á ferðinni stendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×