Innlent

Brunarannsókn hafin í Njarðvík

Rannsókn er nú hafin í rústum iðnaðarhússins sem brann að hluta í Njarðvík í nótt. Lögreglumenn og fulltrúar tryggingafélaga eru á vettvangi en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá vél sem maður á bílaverkstæði í húsinu var að vinna við. Auk þess að húsið brann að hluta til grunna, gjöreyðilögðust sjö eða átta bílar sem voru í húsinu og utan við það. Um tíma voru slökkviliðsmenn í mikilli hættu þar sem gaskútar og flugeldalager sprungu í loft upp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×