Lífið

Óléttan er frábær fyrir kynlíf Brangelinu

Það er engin þörf á því að hætta að vera kynbomba þó maður sé óléttur að tveimur grislingum. Ofurbomban Angelina Jolie segir að minnsta kosti að það að ganga með tvíbura hafi stórbætt kynlíf hennar og kærastans Brads Pitt.

Lífið

James Blunt vissi ekkert um afdrif bangsa

Söngvarinn og hermaðurinn fyrrverandi James Blunt hefur lítið vit á íslenskri tónlist, en ein af fyrstu plötunum sem hann eignaðist var þó með Björk. Hann hafði ekki fyrr en í dag heyrt um sviplegt fráfall ísbjarnarins fyrir norðan, og segir raunar að hann hefði ekki verið stórræðanna hefði hann hitt hann sjálfur. Þetta er meðal þess sem hann sagði Svanhildi Hólm í viðtali sem birtist í Íslandi í dag í kvöld.

Lífið

Bjórinn hjá Arnari var örugglega volgur

Mörgum tónlistarspekingum brá heldur betur í brún þegar þeir opnuðu Fréttablaðið í morgun og sáu einkunnargjöf blaðsins vegna tónleika Whitesnake í Höllinni, síðastliðinn þriðjudag.

Lífið

Amy syngur fyrir Abramovich í Moskvu

Söngkonan Amy Winehouse treður í næstu viku upp í í Moskvu, við opnun listagallerís sem rekið er af Dariu hukovu, kærustu rússneska milljarðamæringsins Romans Abramovich.

Lífið

Oprah Winfrey áhrifamesta stjarnan að mati Forbes

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey situr efst á lista Forbest tímaritsins yfir hundrað áhrifamestu stjörnurnar í Hollywood þetta árið. Tímaritið lagði mat á tekjur og frægð viðkomandi stjarna við gerð listans, en Winfrey þénaði sem samsvarar rúmum tuttugu milljörðum króna síðastliðið ár.

Lífið

Áföllin dynja á Hulk Hogan

Leikarinn Hulk Hogan á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Fyrir nokkru klessukeyrði sonur hans, Nick Hogan, bíl sinn með þeim afleyðingum að vinur hans liggur í dái, og skömmu síðar skildi eiginkona Hulk og barnsmóðir við hann. Ekki skánar það nú.

Lífið

Airwaves aldrei glæsilegri á afmælisári

CSS, Yelle, Crystal Castles og Simian Mobile Disco eru á meðal hljómsveita sem troða munu upp á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Rétt í þessu var að ljúka blaðamannafundi á veitingastaðnum Panoroma þar sem Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs sem á og rekur Iceland Airwaves tónlistarhátíðina, fór yfir þann styr sem staðið hefur um hátíðina að undanförnu.

Lífið

Grænir strippalingar í Laugarásbíó - myndir

Umræddir strippalingar, Magnús Bess Júlíusson og Þór Harðarson, sem líktust óneitanlega Hulk, vöktu mikla kátínu gesta og höfðu ekkert á móti því að setja sig í réttu stellingarnar fyrir ljósmyndara Vísir.is.

Lífið

Sköllóttir fótboltamenn auglýsa Wella- hárvörur

„Við erum alltaf að minna á vörurnar okkar og nú langaði okkur að tengja okkur við fótboltann og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Ásgeir Sveinsson, framkvæmdastjóri Halldórs Jónssonar ehf. sem er með umboð fyrir Wella.

Lífið

Oprah sú valda­mesta

Spjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey var valin valdamesta stjarna heims annað árið í röð af tímaritinu Forbes sem í dag birti lista yfir 100 valdamestu stjörnunnar.

Lífið

Hvílir bölvun á Bond?

Þá er það opinbert. Það hlýtur að hvíla bölvun á nýjustu Bond-myndinni, Quantum of Solace. Röð slysa hefur dunið á myndinni, og nú var það sjálfur aðalleikarinn sem meiddist.

Lífið

Fyrstu myndir Ásdísar Ránar fyrir Milljón dollara módelleitina

Vefsíðan Saavy.com hefur birt fyrstu myndirnar og kynningarmyndbandið af Ásdísi Rán fyrir The Million Dollar Model Search raunveruleikaþáttinn. Ljóst að hinar stúlkurnar ellefu í þáttunum munu eiga við ramman reip að draga, en aðdáendur Ásdísar fara afar fögrum orðum um myndirnar í athugasemdakerfi síðunnar. Einn lýsir Ásdísi til dæmis sem holdi klæddri fullkomnun.

Lífið

Í skýjunum yfir föðurhlutverkinu

Leikarinn Ben Affleck fær ekki leið á að ræða opinberlega um jákvæðar tilfinningar sínar eftir að Violet, dóttir hans og leikkonunnar Jennifer Garner, fæddist fyrir tveimur árum.

Lífið

Brangelina fær miðil til að innrétta barnaherbergið

Þau Brad Pitt og Angelina Jolie hafa átt í stökustu vandræðum með að innrétta barnaherbergið fyrir tvíburana sína sem væntanlegir eru í heiminn í ágúst. Eins og önnur hver stjarna leituðu þau upprunalega til barnavöruverslunarinnar Petit Trésor í Beverly Hills um aðstoð. Þegar þau gátu svo alls ekki sammælst um hvaða mublur skyldi velja ákváðu þau að leita aðstoðar annars staðar. Hjá miðli.

Lífið