Lífið
Rauðhærð í gær - aflituð í dag Leikkonan Nicole Kidman, 44 ára, er þessa dagana stödd í New Orleans við tökur á nýrri kvikmynd sem ber heitið The Paperboy. Upphaflega var leikkonan Sofia Vergara ráðin í aðalhlutverkið en Nicole ákvað að taka það að sér með stuttum fyrirvara, í júní síðastliðnum. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Nicole með aflitað hár á tökustað í gær. Lífið 2.8.2011 11:47
Garðar Gunnlaugs snýr aftur í fyrirsætubransann „Þetta er eins og að koma heim,“ segir Garðar Gunnlaugsson, knattspyrnukappi, bjórframleiðandi og fyrirsæta. Lífið 2.8.2011 10:00
Betlar peninga á Toronto-hátíð "Maður verður bara að betla peninga alls staðar núna, því ekki þýðir það á Íslandi,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Friðrik Þór Friðriksson. Lífið 2.8.2011 08:00
Smávaxin stúlka með stóra rödd Hin breska Amy Winehouse lést aðeins 27 ára gömul á heimili sínu í London fyrir viku. Söngkonan sem barðist við áfengis- og eiturlyfjafíkn í mörg ár fyrir opnum tjöldum. Lífið 1.8.2011 16:00
Plata Amy Winehouse á toppnum Sala á tónlist Amy Winehouse hefur margfaldast frá því að breska söngkonan lést fyrir rúmri viku. Fimm ára gömul plata hennar, Back to Black, trónir nú í efsta sæti breska vinsældarlistans líkt og platan gerði eftir að hún kom út. Fyrri plata söngkonunnar, Frank, sem kom út árið 2003 er í 5. sæti á vinsældarlistanum. Amy Winehouse fannst látin á heimili sínu á laugardaginn fyrir viku, en hún lengi hafði glímt við áfengis- og eiturlyfjavanda. Hún var 27 ára. Tónlist 1.8.2011 13:38
Boðið að farða á tískuvikunni í Kaupmannahöfn „Þetta er rosaleg viðurkenning fyrir mig,“ segir förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason, en honum var boðið að farða fyrir snyrtivörurisann MAC á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Ísak hefur lengi unnið hjá MAC á Íslandi, en hann er einn eftirsóttasti förðunarfræðingur landsins. Ísak var einnig Karli Berndsen innan handar í þættinum Nýtt útlit sem sýndur var á Skjá einum, en þar veittu þeir félagar fólki nýtt útlit, frá förðun til fata. Lífið 1.8.2011 13:30
Brúðkaup í tveimur heimsálfum Bítillinn Paul McCartney ætlar að tjalda öllu til þegar hann gengur að eiga unnustu sína, Nancy Shevell, síðar á árinu. Parið ætlar að láta gefa sig saman í lítilli athöfn í London að viðstöddum fjölskyldumeðlimum. Því næst heldur parið til New York þar sem þau slá upp stórri brúðkaupsveislu fyrir vini og vandamenn. Lífið 1.8.2011 11:15
Spielberg segir þrívídd ekki fyrir alla Leikstjóranum virta Steven Spielberg finnst að kvikmyndaframleiðendur ættu ekki að láta blindast af þrívíddartækninni sem virðist tröllríða markaðnum núna. Spielberg er þeirrar skoðunar að þrívídd sé ekki fyrir alla áhorfendur og að það séu einfaldlega ekki allar myndir sem henta tækninni. Lífið 1.8.2011 09:00
Bandarískur svartmálmur Bandaríska svartmálmshljómsveitin Negative Plane lýkur sínum fyrsta Evróputúr með tónleikum á Café Amsterdam laugardagskvöldið 6. ágúst. Íslensku sveitirnar Abominor, Chao og Svartidauði sjá um upphitun. Lífið 31.7.2011 21:00
Kallaður blóðgaurinn á götu Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen syngur eitt vinsælasta lag landsins, Úlfur úlfur, ásamt Bubba Morthens. "Já, lagið er komið á toppinn á vinsældalista Rásar 2. En það er alls ekki vegna þess að ég er starfsmaður RÚV. Ég hef verið í sumarfríi undanfarið og það er engin spilling í gangi,“ segir tónlistar- og hljóðmaðurinn Davíð Berndsen og hlær þegar hann er spurður út í vinsældir lagsins Úlfur úlfur, sem hefur hljómað ótt og títt á öldum ljósvakans síðan það kom út í byrjun mánaðarins. Lífið 31.7.2011 16:00
Amy Winehouse ýtti Bubba út í sálartónlist „Amy var í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Bubbi Morthens, en eins og kunnugt er féll söngkonan Amy Winehouse frá á laugardaginn fyrir viku en hún hafði glímt við áfengis- og eiturlyfjavanda. Bubbi segir söngkonuna hafa haft mikil áhrif á nýjustu plötu sína og segir hana jafnframt ástæðu þess að hann hóf að glíma við sálartónlistina. Tónlist 31.7.2011 13:30
Óviss um vinsældir Ungstirnið Rebecca Black segir það ekkert víst að nýjasta lagið hennar, My Moment, verði eins vinsælt og hennar síðasta, Friday. „Friday var svo rosalega vinsælt. Það verður erfitt að bæta árangur þess,“ sagði hin fjórtán ára Black, sem sló í gegn á Youtube fyrr á árinu. My Moment verður fyrsta smáskífulag fimm laga plötu sem Black gefur út í næsta mánuði. Lífið 31.7.2011 11:00
Stjörnum prýdd mörgæsamynd Sæta dansandi mörgæsin sem heillaði áhorfendur upp úr skónum í teiknimyndinni Happy Feet snýr aftur á hvíta tjaldið í lok árs. Lífið 31.7.2011 09:30
Á hvíta tjaldið Stjarnan úr sjónvarpsþáttunum vinsælu Glee, Lea Michele, hlýtur að vera himinlifandi með að hafa landað hlutverki í jólamyndinni í ár, New Year´s Eve. Þar leikur hún við hlið margra af skærustu stjörnum kvikmyndabransans á borð við Ashton Kutcher, Michelle Pfeiffer, Katherine Heigl og Josh Duhamel. Leikstjórinn er sá hinn sami og gerði myndina Pretty Woman, Garry Marshall. Myndin verður frumsýnd í desember. Lífið 30.7.2011 20:00
Vetrarsólin er nútímalegri Önnur sólóplata Snorra Helgasonar, Winter Sun, er að koma út. Hann segist hafa vaxið mikið sem tónlistarmaður síðan hann flutti til London. Önnur plata Snorra Helgasonar, fyrrum liðsmanns Sprengjuhallarinnar, nefnist Winter Sun og er fáanleg í rafrænni forsölu á tónlistarveitunni Gogoyoko. Formlegur útgáfudagur er 4. ágúst og er það Kimi Records sem gefur út. Tónlist 30.7.2011 16:00
Seinni hálfleikur að hefjast "Þetta eru dálítil tímamót, það er alveg ljóst. Maður fær að minnsta kosti þá tilfinningu að seinni hálfleikur sé að hefjast," segir Arnór Guðjohnsen knattspyrnumaður spurður hvernig honum finnist að vera fimmtugur í dag. "Ég ætla pottþétt að halda upp á afmælið en þetta er verslunarmannahelgi og erfitt að ná fólki saman, þannig að ég fresta því eitthvað." Lífið 30.7.2011 15:30
Átti að vera hörð við stelpurnar „Þetta var mjög skemmtilegt og gaman að fá að taka þátt í þessu,“ segir Jóhanna Björg Christensen þáttastjórnandi og ritstjóri Nude Magazine. Hún, ásamt samstarfskonu sinni Ernu Bergmann, tóku þátt í sjónvarpsþættinum Holland"s Next Topmodel. Lífið 30.7.2011 12:30
Myrknætti á Síldarævintýrinu „Myrknætti“ er titill nýrrar skáldsögu eftir Ragnar Jónasson, rithöfund og lögfræðing. Titillinn var afhjúpaður þegar Ragnar las upp úr bókinni í fyrsta sinn í Þjóðlagasetrinu á Síldarævintýrinu á Siglufirði í gær. Lífið 30.7.2011 12:06
Denise Richards ræðir fíkn við börnin Denise Richards er farin að fræða dætur sínar um fíkn. Ástæðan ku vera sú að það var orðið of erfitt að útskýra fyrir þeim fáránlega hegðun föður þeirra, Charlie Sheen. Eins og kunnugt er, var Sheen djúpt sokkinn í fíkniefnaneyslu og var á endanum rekinn úr þáttunum Two and a Half Men. Lífið 30.7.2011 10:30
Prikið selur óskilamuni á markaði "Fólk kemur nú oftast og leitar að hlutunum sínum en margir eru mjög kærulausir og koma ekkert og leita,“ segir Gísli Freyr Björgvinsson, rekstrarstjóri Priksins, en skemmtistaðurinn heldur fatamarkað í dag. Um er að ræða fatamarkað með óskilafötum sem hafa orðið eftir á staðnum í gegnum tíðina og ekki ratað í réttar hendur að nýju. Lífið 30.7.2011 09:00
Leiðinlegir yfirmenn og ofurhermenn Tvær kvikmyndir voru frumsýndar hér á landi í gær. Gamanmyndin Horrible Bosses og hasar-myndin Captain America: The First Avenger. Lífið 30.7.2011 08:00
Víst er parasvipur með ykkur Söngvarinn Justin Timberlake og leikkonan Mila Kunis stilltu sér upp á rauða dreglinum á hótel Adlon í Berlín í Þýskalandi í dag. Eins og meðfylgjandi myndir sýna fór vel á með Justin og Milu en hún var klædd í Lanvin kjól og Ferragamo skó. Lífið 29.7.2011 18:10
Mamma Amy brosti í gegnum tárin Fjölskylda og vinir söngkonunnar Amy Winehouse, sem féll frá aðeins 27 ára gömul á laugardaginn var, hittust á uppáhalds jazz klúbbnum hennar í London, Jazz After Dark í gær. Ef myndirnar eru skoðaðar má meðal annars sjá mömmu Amy, Janis, brosa blítt, baksöngvara söngkonunnar, fyrrverandi kærasta Reg Traviss, Mitch pabba hennar og vinkonu Kelly Osbourne. Lífið 29.7.2011 15:13
Það gerist ekki svalara Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Diesel Black Gold haustlínu í ár sem einkennist af svalheitum, leðri og rúskinni. Hér má sjá myndband frá sýningunni (Dieselblackgold.com). Tíska og hönnun 29.7.2011 14:08
Safnpakki með Smiths Safnpakki með öllu því sem enska hljómsveitin The Smiths gaf út á ferli sínum er væntanleg í búðir 3. október. Pakkinn hefur að geyma endurhljóðblandaðar útgáfur af átta plötum, bæði á geisladiskum og vínyl, endurunnar útgáfur af 25 smáskífum og fleira efni. Lífið 29.7.2011 14:00
Já já þér líður vel allsberri Söngkonan Kelly Rowland, 30 ára, sem hefur tekið að sér í að dæma í X Factor þáttunum í Bandaríkjunum situr fyrir nakin í tímaritinu Vibe eins og sjá má á myndunum í myndasafni. Mér líður vel í mínu eigin skinni. Nei, ég er ekki að reyna að selja kynlíf með þessum myndum heldur er ég algjörlega ég sjálf. Enginn segir mér hvað ég á að gera lengur eða hvernig ég eigi að haga mér. Ég er hætt að láta aðra segja mér hvað er rétt eða rangt. Svona er ég og mér líður vel með sjálfa mig, lætur Kelly hafa eftir sér í fyrrnefndu tímariti. Lífið 29.7.2011 12:38
Láta drauminn rætast og opna förðunarskóla „Þetta hefur verið draumur hjá mér frá því ég byrjaði að læra förðun“ segir Eygló Ólöf Birgisdóttir sem nýverið opnaði förðunarskólann Mood Make Up School ásamt Magneu Elínardóttur og Díönu Björk Eyþórsdóttur. Lífið 29.7.2011 12:15
Hollenskar fyrirsætur með tískusýningu á Ingólfstorgi „Ísland er mjög frábrugðið Hollandi. Það er áskorun að koma hingað,“ segir sjónvarpsframleiðandinn Barbara frá Hollandi. Hún verður stödd hér á landi fram á miðvikudag við upptökur á sjónvarpsþættinum Holland"s Next Top Model ásamt hópi Hollendinga. Lífið 29.7.2011 12:00
Stundum er ein sundlaug einfaldlega ekki nóg Meðfylgjandi má sjá myndir af svölu svörtu einbýlishúsi, sem er í eigu ungra barnlausra hjóna, 30 km frá Buenos Aires í Argentínu. Ef myndirnar eru skoðaðar má greinilega sjá að gler er notað í miklum mæli og að ekki er lagt mikið upp úr öryggi (enda engin börn á heimilinu) þegar kemur að sundlaugunum. Húsið er kjörið fyrir veisluhöld og sundlaugarpartý. Tíska og hönnun 29.7.2011 11:44
Stöðugt í megrun Sextánfaldur Grammyverðlaunahafinn, söngkonan Beyonce Knowles, Forbes tímaritið hefur oftar en ekki sett hana efst á lista yfir áhrifamestu söngkonur heims, hún er gift hip hop mógúlnum Jay-Z sem er metinn á 450 milljónir dollara. En hún er alltaf í megrun. Hún passar stöðugt upp á mataræðið. Þegar orðin Beyonoce og megrun eru slegin inn á Google leitarvélina koma upp uppskriftir af djús sem hún blandar saman og þambar þegar hún vill léttast hratt. Þá blandar hún saman sítrjónudjús og cayenne pipar sem er sérstök tegund af chilidufti. Það er mjög svipað á bragðið og af svipuðum styrkleika og hefðbundið chili en duftið er fíngerðara. Hún náði að létta sig á skjömmum tíma fyrir hlutverk sitt í Dreamgirls með því að lifa á þessari blöndu í heila tíu daga án þess að borða mat samhliða hreinsuninni eða öllu heldur sveltinu. Þá dansar hún og hleypur á hverjum degi, reynir allt hvað hún getur til að sleppa kolvetnisríkum mat og leggur áherslu á litríka litla matarskammta. Hún sneyðir alfarið fram hjá brauði, víni og rauðu kjöti. Beyonce verður pirruð og leið þegar hún fer á djúskúrinn og hugsar ekki um annað en mat. Hún hefur viðurkennt opinberlega að þegar hún hættir í djúsþambinu og byrjar að borða á ný hlaðast kílóin á hana enn fleiri en áður og hratt. Lífið 29.7.2011 10:42